Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, á frumkvæði að samtali laugardaginn 10. október til að ræða spurninguna: hvernig samfélag viljum við skapa saman? Markmiðið er að skapa vettvang þar sem fólk á öllum aldri kemur saman til að hlusta og tala saman.
Tilefnið er að 40 ár eru frá leiðtogafundinum í Höfða þar sem Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna, og Mikhail Gorbachev stigu skref í átt að takmörkun á vígbúnaði. „Fjörutíu árum síðar er tímabært að setja samtal, frið og framtíðina aftur á dagskrá,“ sagði Halla þegar boðað var til samtalsins.
Rætt var við Höllu og Lísu Margréti Gunnarsdóttur, forseta Landssambands íslenskra stúdenta í Vikulokunum.
Telur að öryggi hafi verið skilgreint þröngt
Halla segir að fundurinn í Höfða hafi miklu breytt. „Þá var hér fyrir 40 árum samtal sem breytti kúrs sögunnar, um afvopnun kjarnorkuvopna. Hér byrjaði traustið á milli þjóðhöfðingja stjórveldanna,“ segir hún.
„Þarna reyndist viskan verða meiri á endanum og traustið sem var byggt upp í samtalinu heldur en að við leyfðum þessari tækni að tortíma okkur og ég held að við þurfum alla vega jafn mikla visku núna því að kjarnorkuógnin er aftur komin inn á sviðið, stríð og átök að vaxa, og til viðbótar þessi gervigreindarbylting,“ segir Halla.
Aðspurð hvað henni þyki um þróun varnar- og hernaðarmála í dag í ljósi sögunnar, að útgjöld séu aukin í þá málaflokka, átök séu áberandi og Frakkar hafi til að mynda skilgreint næstu hálfu öldina sem tímabil kjarnorkuvopna segir hún: „Ég tek auðvitað öryggis- og varnarmál alvarlega, það er ekki annað hægt miðað við þróunina í heiminum en ég segi stundum að við skilgreinum öryggi ansi þröngt.“
Friður hljóti alltaf að vera markmiðið
„Ég held til dæmis að þegar öryggi og varnarmál taka ekki tillit til líðan ungs fólks, til átaka innan samfélaga eða milli, til þess að traust og samtal eru innviðir sem þarf líka að fjárfesta í til að við búum í friðsælum samfélögum og búum í friðsælum heimi. Það er bara víða sem samtalið hefur brotnað niður á milli landa og milli hópa innan samfélaga, á milli kynslóða,“ segir Halla.
„Ein ástæða þess að unga fólkið er að taka forystu í þessu samtali, sem er samfélagsleg tilraun hjá okkur, er til að minna okkur á að við erum friðsælasta samfélag í heimi. Við höfum áður verið staður samtals sem breytti kúrs sögunnar og hér hefur áður ýmislegt sem þótti ómögulegt orðið mögulegt,“ segir hún.
Því þurfi að staldra við og tala saman, „og minna okkur á gildi samtals og friðar. Minna okkur á að friður hlýtur alltaf að vera markmiðið og fjárfesting í mannlegum innviðum hlýtur þá að vera hluti af því að tryggja öryggi landsins og öryggi ungs fólks.“