Segir fjölmiðla­nefnd stjórn­lausa og sektaóða - Vísir

Segir fjölmiðla­nefnd stjórn­lausa og sektaóða - Vísir

Segir fjölmiðla­nefnd stjórn­lausa og sektaóða - Vísir

„Þetta er náttúrlega ríki í ríkinu,“ segir Þórarinn inntur eftir því hvað hafi farið fram á fundinum. Hann sátu ásamt ráðherra tveir sérfræðingar sem voru þau Heiðdís Lilja Magnúsdóttir og Stefán Óli Jónsson auk Tómasar Guðjónssonar aðstoðarmanns ráðherra. 

Hlaðvarparar sem mættu voru þau Þórarinn, Komið gott-systur, þær Ólöf Skaftadóttir og Kristín Gunnarsdóttir auk Birkis Karls Sigurðssonar sem er annar umsjónarmanna hlaðvarpsins Chess after Dark. Öll hafa þau, ásamt reyndar fleiri hlaðvörpurum, fengið erindi frá fjölmiðlanefnd þar sem þess er farið á leit að þau skrái sig hjá nefndinni sem fjölmiðlar. Því vilja þau ekki una, einfaldlega vegna þess að þau líta ekki á sig sem fjölmiðlafólk.

Þeir voru vígalegir hlaðvarpararnir sem fóru á fund Loga í morgun. Þar komu þau sjónarmiðum sínum á framfæri og voru að sögn ánægð með það að Logi vildi hitta þau.

Þórarinn segist þakklátur fyrir það að ráðherra hafi boðað þau á sinn fund og hafi hlustað á sjónarmið hlaðvarparanna. Nýverið auglýsti fjölmiðlanefnd eftir framkvæmdastjóra og öll sem hér eru nefnd að ofan í hópi hlaðvarpara hafa sótt um starfið. Vísir hefur sent fyrirspurn til fjölmiðlanefndar og óskað eftir nöfnum umsækjenda en umsóknarfrestur er runninn út.

Segir nefndina svífast einskis

„Ég tel mig vel hæfan í starfið. Ég er stjórnsýslufræðingur að mennt og hef reynslu á öllum sviðum sem varða nefndina. Það kæmi mér ekki á óvart ef ég fengi þessa stöðu,“ segir Þórarinn. Honum virðist full alvara með umsókninni. En hvernig var fundurinn?

„Jú, jú, það var velt upp þessum sjónarmiðum að fjölmiðlanefnd væri að starfa eftir lögum samkvæmt og að það kæmi ekki í hlut ráðuneytisins að bregðast við nema þá með lagabreytingum.“

Vandinn er sá að fjölmiðlanefnd er sjálfstæð stjórnsýslueining og ráðherra getur því ekki hlutast til um störf hennar með beinum hætti. Þórarinn segir að ráðherra og ráðuneytismenn hafi verið að færa rök fyrir sjónarmiðum fjölmiðlanefndar vitandi að hún starfar þvert á stefnu ráðuneytisins. Þórarinn segist telja að það hafi verið meira til málamynda en nokkuð annað. Logi vilji breyta þessu. Það hefur komið fram.

„En við þurfum eitthvað haldbært til að geta stutt okkur við. Chess After Dark og Komið gott eru undir mikilli tímapressu. Þessi nefnd svífst einskis á sinni vegferð. Fjölmiðlanefnd hefur þegar farið hart í mig og segir að ég þurfi að lúta þeirra vilja ellegar verði illa fyrir mér komið. Og mér sýnist fjölmiðlanefnd í þeirri vegferð nú að fara á eftir öðrum hlaðvörpum – ekki bara þau hlaðvörp sem eru vinsæl. Það er líkt og hún sé komin í sjötta gír og fari nú eftir hlaðvörpum sem ekki væru eins áberandi.“

Skilur ekki að hlaðvarparar teljist til fjölmiðlamanna

Þórarinn segir auglýsinguna frá fjölmiðlanefnd um starfsmann sem eigi að finna sér verkefni til marks um þetta. Hann telur að þau hafi notið skilnings hvað varðar þeirra sjónarmið en þetta sé afar sérstök staða.

„Það er ekki verið að gera þetta á Norðurlöndum, sem sagt að krefja hlaðvörp um að skrá sig sem fjölmiðla. Við erum öll í annarri vinnu, þetta er hliðargigg okkur til skemmtunar. Nú eru fjölmiðlastyrkir sem margir eru að bítast um. Að vilja setja okkur undir þennan hatt er afar sérkennilegt.“

Þórarinn segir að þau hafi enn fremur vakið athygli á því sem Árni Helgason þingmaður sagði í pontu Alþingis, að starfsmenn væru í þeirri stöðu að hlusta á hlaðvörp með það fyrir augum að hlusta eftir hugsanlegum brotum meðal þeirra sem eru að blaðra án þess að hafa nokkra ritstjórnarstefnu.

Fjölmiðlanefnd sögð ríki í ríkinu

„Fjölmiðlanefnd er undir Loga sett en á að heita óháð nefnd. Ég skil ekki alveg þessa stjórnsýslu og er þó stjórnsýslufræðingur að mennt. Eins og þið fjölluðuð um, að Logi væri að skera okkur úr snörunni, þá virðist fjölmiðlanefnd vera ríki í ríkinu og fer bara eftir einhverjum allt öðrum reglum en ættu að gilda. Ef ráðherra leggur einhverjar línur ætti nefndin að taka mið af því,“ segir Þórarinn. Honum virðist nefndin ekki gæta meðalhófs heldur keyri ákaft á refsiheimildum sínum.

„Þau sendu á mig sekt fljótlega eftir að Logi hafði lýst því yfir að ekki bæri að skilgreina hlaðvörp sem fjölmiðla. Og ég hef rætt við nægjanlega marga stjórnmálamenn sem telja þetta óásættanlega stöðu. Við erum að missa fjölmiðla, sjónvarpsfréttir Sýnar eru lagðar niður, en það virðist engu skipta. Nefndin horfir ekkert til þess og virðist áfram um eftirlitshlutverk sitt en hirðir í engu um málfrelsi eða að bæta stöðu fjölmiðla. Þetta virðist eingöngu snúast um að fá pening í kassann og sanna tilverurétt sinn, jafnvel þó það kosti að fjölmiðlar fari í þrot.“

Þórarinn er nú að fara yfir sektarákvæði sem á hann var lagt, 500 þúsund krónur, ásamt lögfræðingi sínum. Hann telur þá sem hafa lagt hana á vanhæfa til að gera það en þetta er nokkuð sem hann mun fjalla um síðar.

„Flest erum við með húsnæðislán og börn og ótrúlegt að verið sé að sekta okkur fyrir að fjalla um okkar hugðarefni. En það virðist ríkja einhver feimni við að setja fjölmiðlanefnd skorður með til dæmis reglugerð. Lögin eru að fara að breytast en fjölmiðlanefnd virðist ríkja í ríkinu þangað til. Líkt og tröllið sem stal jólunum deila þau út sektum vinstri hægri. Það að verið sé að senda þessa sekt á mig persónulega er með ólíkindum.“

Ósátt við formann Blaðamannafélagsins

Nú var Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélagsins, í viðtali hjá okkur nýlega og hún taldi ekki úr vegi að fjölmiðlanefnd færi á eftir ykkur. Vísir hefur greint talsverða gremju meðal hlaðvarpara vegna orða hennar en hún vill gera greinarmun á blaðamennsku og svo fjölmiðlum, sem hún telur að þið gætuð fallið undir?

„Hún má hafa það sjónarmið. Mér finnst að Sigríður Dögg verði að gera sér grein fyrir því að sífellt erfiðara er að halda úti fjölmiðli. Að reyna að fella fleiri undir það hugtak lýsir óðagoti. 

Mér finnst hún draga úr vægi fjölmiðla. Ég nýti mér blaðamennsku annarra, fréttir sem ég get blaðrað um. Þegar ég fæ til mín viðmælendur segi ég: „Hvað viltu ræða?“ og ýti svo á „rec“. Að kalla það ritstjórnarstefnu gerir lítið úr starfi fjölmiðla. Elísabet Inga Sigurðardóttir mætir ekki til að taka viðtal við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og segist ætla að ýta á rec og sjá hvað gerist. Ég tel þetta skammsýna afstöðu Sigríðar Daggar. Hún hefur rétt á þessari skoðun en vill hún víkka út þessa skilgreiningu og fella til að mynda TikTok-ara þar undir.“

Sigríður Dögg segist geta fært rök fyrir því að áhrifavaldar ættu að skilgreinast sem fjölmiðlar?

„Það er galið! Að Facebook-færslur og áhrifavaldar verði þarna undir. Brynjar Níelsson borgarfulltrúi sem fær að meðaltali þúsund læk á sínar færslur, að hann sé þá líka fjölmiðill? Nei, það er enginn sem telur hann vera fjölmiðil.“

Eina stéttin sem fær ekki að skilgreina sig sjálf

Þórarinn telur þetta skammsýni og honum fannst Sigríður Dögg vera að gera blaðamönnum óleik með því að flokka Kristínu Gunnarsdóttur sem fjölmiðil. Hann spyr hvort Sigríður Dögg ætli að neyða þetta fólk í Blaðamannafélagið?

„Blaðamenn væru þá eina starfsstéttin þar sem fólk er krafið um að vera skilgreint gegn vilja sínum. Ef ég baka sörur fyrir jólin og vil jafnvel að selja þær á Facebook, má ég þá eiga von á því að Bakarafélagið mæti og haldi því fram að ég sé bakari? Þetta er eina starfsstéttin þar sem menn eru skilgreindir sem slíkir í óþökk þeirra sjálfra. Það er glórulaus afstaða.“

Ekki í höndum ráðherra

Vísir sendi fyrirspurn til ráðuneytisins og óskaði eftir svörum um hvort eitthvað hefði komið út úr fundinum og hvort til stæði að grípa til aðgerða.

Í svari ráðuneytisins segir að fundurinn hafi farið fram til að heyra sjónarmið hlaðvarpsstjórnenda sem hafa tjáð sig um þessi mál. Ráðherra hafi lýst því að hann tæki áhyggjur þeirra alvarlega en undirstrikað að hann gæti ekki hlutast til um störf Fjölmiðlanefndar. Eftir sem áður standi yfir vinna í ráðuneytinu við breytingar á lögum um fjölmiðla. Þar verði meðal annars horft til skráningarskyldu. Frumvarp þess efnis hafi verið boðað eftir áramót.

Þá segir að það sé ekki í höndum ráðherra að koma til móts við óskir hlaðvarpara, svo sem með því fresta sektargreiðslum sem lagðar hafa verið á þá og/eða til stendur að leggja á þá fyrir að móast við að skilgreina sig sem fjölmiðlafólk.

„Það er ljóst að eftirlitsstjórnvaldi er falin eftirfylgni með lögum og ráðherra hefur lýst því að hann hafi ekki heimildir til að skipta sér af störfum sjálfstæðra eftirlitsstofnana.“

#fjölmiðlanefnd #segir #sektaóða #stjórnlausa #vísir

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262945251d/segir-fjolmidlanefnd-stjornlausa-og-sektaoda

📰 Aðrar fréttir

„Skilgreinum öryggi ansi þröngt“
📅 07.10.2026 👁️ 1
„Skilgreinum öryggi ansi þröngt“
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, á frumkvæði að samtali laugardaginn 10. október til að ræða spurninguna: hvernig samfélag viljum við skapa saman? ...
Flugfreyja hjá Icelandair vill að flugdólgur greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
📅 07.10.2026 👁️ 0
Flugfreyja hjá Icelandair vill að flugdólgur greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært mann fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn loftferðum. Í ákæru segir að brotin hafi verið framin í flugi Ice...
€1 tourist tax proposed to fight poverty in the Canary Islands
📅 07.10.2026 👁️ 0
€1 tourist tax proposed to fight poverty in the Canary Islands
A tourist tax of at least €1 per overnight stay has been proposed in the Canary Islands to fund support for children and families.Raimundo Moreno Ménd...
Verða að viður­kenna barn getið með staðgöngumæðrun - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Verða að viður­kenna barn getið með staðgöngumæðrun - Vísir
Þetta er niðurstaða dóms dómstólsins í dag, þar sem hann svaraði spurningum sem Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði til hans varðandi túlkun tilskipunar og...
Leita að ökumanni hlaupahjóls sem ók á gangandi vegfaranda
📅 07.10.2026 👁️ 0
Leita að ökumanni hlaupahjóls sem ók á gangandi vegfaranda
Lögreglan á Suðurnesjum leitar ökumanns sem ók á gangandi vegfaranda á rafhlaupahjóli fyrir utan Kjörbúðina við Hafnargötu Reykjanesbæ í morgun.Lögreg...
Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryk­sugu“ Rúv - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryk­sugu“ Rúv - Vísir
Tómas kvaðst hafa starfað á fjölmiðlum í tuttugu ár. Honum þætti erfitt að sætta sig við að fá ekki lengur sjónvarpsfréttir klukkan hálfsjö á kvöldin,...
Við­ræður VR við SA á leið inn „blind­götu“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Við­ræður VR við SA á leið inn „blind­götu“ - Vísir
Innan við sólarhringur er nú þar til frestur til þess að segja upp kjarasamningum VR, LÍV og fagfélaganna annars vegar og SA hins vegar rennur út. Fél...
Tíma­rit eigi hvergi stað og fái enga styrki - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Tíma­rit eigi hvergi stað og fái enga styrki - Vísir
Opnað var fyrir umsóknir til úthlutunarnefndar í ágúst og rann frestur til að sækja um út þann 1. september. Úthlutunarreglum var breytt í sumar en sí...
Boots sold in $8.9bn deal to Canadian billionaire family
📅 07.10.2026 👁️ 1
Boots sold in $8.9bn deal to Canadian billionaire family
The sale of the High Street chain was announced on Wednesday.
Boots sold in £7bn deal to Canadian billionaire family
📅 07.10.2026 👁️ 0
Boots sold in £7bn deal to Canadian billionaire family
The sale of the High Street chain was announced on Wednesday.
Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin - Vísir
Ásgeir var í viðtali við fréttastofu spurður hvernig fyrirtæki og sveitarfélög gætu staðið við loforð um að hækka verð og gjaldskrár ekki umfram 2,5 p...
„Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
📅 07.10.2026 👁️ 1
„Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
„Það gengur ótrúlega vel hjá mér og nýju kærustunni minni, sambandið er frábært og við pössum svo vel saman. Eina vandamálið er að hún er kannski syst...
Einn frægasti líkamsræktaráhrifavaldur heims fluttur í skyndi á sjúkrahús vegna hjartavandamála
📅 07.10.2026 👁️ 1
Einn frægasti líkamsræktaráhrifavaldur heims fluttur í skyndi á sjúkrahús vegna hjartavandamála
Joey Swoll, einn þekktasti líkamsræktaráhrifavaldur heims, tilkynnti að hann hafi verið fluttur í skyndi á sjúkrahús á laugardagsmorgun vegna hjartava...
Flugfreyja hjá Icelandair vill að aldraður læknir greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
📅 07.10.2026 👁️ 1
Flugfreyja hjá Icelandair vill að aldraður læknir greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært mann fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn loftferðum. Samkvæmt frétt Vísis er ákærði íslenskur læknir á nír...
Krefst skýringa á því hvers vegna annað eigi að gilda um Aþenu en önnur íþróttafélög í Reykjavík - „Hvar eru þau gögn?“
📅 07.10.2026 👁️ 1
Krefst skýringa á því hvers vegna annað eigi að gilda um Aþenu en önnur íþróttafélög í Reykjavík - „Hvar eru þau gögn?“
Töluvert hefur verið deilt um aðstæður körfuboltafélagsins Aþenu í Efra-Breiðholti. Brynjar Karl Sigurðsson þjálfari og einn helsti forvígismaður féla...
Sjúkt dýraklám fannst hjá Andrew Tate – Sýndi manneskjur í samförum við tvær dýrategundir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sjúkt dýraklám fannst hjá Andrew Tate – Sýndi manneskjur í samförum við tvær dýrategundir
Áhrifavaldurinn Andrew Tate, sem er grunaður um kynferðisbrot og var framseldur til Bretlands, var með dýraklám í símanum sínum. Hann tók einnig upp k...
Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tón­list í pólitískum á­róðri - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tón­list í pólitískum á­róðri - Vísir
Sverrir er einn þekktasti tónlistarmaður landsins og situr á þingi fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi. Hann tók sæti sem varaþingmaður fyrir Víði Rey...
Gera þarf kennara að stórstjörnum
📅 07.10.2026 👁️ 1
Gera þarf kennara að stórstjörnum
Einn helsti sérfræðingur OECD í Pisa-prófunum telur að Íslendingar geti bætt sig verulega með því að sýna kennurum og menntun meiri virðingu. Hann seg...
Nóbelsverðlaun fyrir að skilja að sameindir – markaði tímamót í lyfjaframleiðslu
📅 07.10.2026 👁️ 1
Nóbelsverðlaun fyrir að skilja að sameindir – markaði tímamót í lyfjaframleiðslu
Efnafræðingarnir Henri Kagan frá Frakklandi og Kenso Soai frá Japan fengu í morgun Nóbelsverðlaunin í efnafræði fyrir að uppgötva aðferð til að aðskil...
The big test facing Kemi Badenoch after her conference speech
📅 07.10.2026 👁️ 1
The big test facing Kemi Badenoch after her conference speech
The big test facing Kemi Badenoch after her conference speech
Geta ekki hafnað viðurkenningu á staðgöngumæðrun
📅 07.10.2026 👁️ 1
Geta ekki hafnað viðurkenningu á staðgöngumæðrun
EFTA-dómstóllinn komst í dag að þeirri niðurstöðu að íslensk stjórnvöld gætu hafa brotið gegn rétti barns með því að viðurkenna það ekki sem barn föðu...
Ru­bio hafi stað­fest varnar­skuld­bindingar gagn­vart Ís­landi - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Ru­bio hafi stað­fest varnar­skuld­bindingar gagn­vart Ís­landi - Vísir
Heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hingað til lands lauk í gær eftir fundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og...
Breyti mynd­böndum af börnum að borða og dansa í barnaníðs­efni - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Breyti mynd­böndum af börnum að borða og dansa í barnaníðs­efni - Vísir
Guðný var til viðtals í Bítinu en fyrr í vikunni var greint frá því að tilkynnt um kynferðisbrot til lögreglu á fyrri árshelmingi hafi ekki verið flei...
Bein út­sending: Kennarar boða til tíðinda - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Kennarar boða til tíðinda - Vísir
Í tilkynningu frá KÍ segir að þetta sé í fyrsta sinn sem sambandið leggi fram sína sýn á þennan hátt.  Þar er einnig skrifað að íslenskt menntakerfi s...
Bein út­sending: Kennarar boða tíðindi - Vísir

Five arrested for inciting racial hatred outside Jewish group's headquarters, says Met
📅 07.10.2026 👁️ 1
Five arrested for inciting racial hatred outside Jewish group's headquarters, says Met
The Met Police say a "spontaneous protest" was staged outside the office of the Board of Deputies.
Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu - Vísir
Áður hefur verið greint frá því að tugir manna hafi verið settir í sóttkví í Síberíu í Rússlandi eftir að starfsmaður rannsóknarstofu sem hefur það að...
France protests: Use of stun grenades suspended
📅 07.10.2026 👁️ 1
France protests: Use of stun grenades suspended
France has halted the use of stun grenades after a 15-year-old boys hand was blown off during student protests.
Kona stungin til bana við mat­vöru­verslun í Malmö - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Kona stungin til bana við mat­vöru­verslun í Malmö - Vísir
Árásin átti sér stað í Bellevuegården-hverfi í Malmö um klukkan tíu í morgun að sænskum tíma, að því er kemur fram í frétt sænska ríkisútvarpsins. Kon...
Man who murdered ex-partner after his prison release is jailed
📅 07.10.2026 👁️ 1
Man who murdered ex-partner after his prison release is jailed
Robert Sabat is given a 17-year-minimum jail term for the fatal stabbing of his former partner.
Rob Burrow would be 'laughing but proud' about knighthood - Sinfield
📅 07.10.2026 👁️ 1
Rob Burrow would be 'laughing but proud' about knighthood - Sinfield
Sir Kevin Sinfield is knighted by the Prince of Wales at Windsor Castle.
Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin - Vísir
Ásgeir var spurður um stöðu kjarasamninga og afstöðu Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, til sambands launa og verðbólgu að loknum kynningarfundi Seðlab...
Sagði upp fimm konum þegar hún gaf honum úrslitakosti
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sagði upp fimm konum þegar hún gaf honum úrslitakosti
Leikarinn Michael Douglas lætur allt flakka í nýrri sjálfsævisögu, One Helluva Ride.Hann segir meðal annars frá upphafi sambands hans og eiginkonu sin...
Katrín Lóa opnar sig um óhugnanlega upplifun í Liverpool
📅 07.10.2026 👁️ 1
Katrín Lóa opnar sig um óhugnanlega upplifun í Liverpool
Katrín Lóa Kristrúnardóttir varð fyrir alvarlegri áreitni á bar í Liverpool á Englandi um helgina, þegar hún sagði dyraverðinum hvað gerðist vildi han...
Sambandið með nýju kærustunni frábært – „Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sambandið með nýju kærustunni frábært – „Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
„Það gengur ótrúlega vel hjá mér og nýju kærustunni minni, sambandið er frábært og við pössum svo vel saman. Eina vandamálið er að hún er kannski syst...
Getur tekið heilu kynslóðirnar að ná jafnvægi eftir sameiningu
📅 07.10.2026 👁️ 1
Getur tekið heilu kynslóðirnar að ná jafnvægi eftir sameiningu
Það getur tekið heilu kynslóðirnar að sníða vankantana af sameiningu sveitarfélaga og ágreiningsefnin geta verið afar fjölbreytt, segir Eva Marín Hlyn...
Sex at­vinnu­lausir um hvert laust starf - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sex at­vinnu­lausir um hvert laust starf - Vísir
Þróunin á vinnumarkaði var meðal þess sem Seðlabankinn fjallaði um á kynningarfundi í morgun eftir að peningastefnunefnd ákvað að halda meginvöxtum ób...
500 krónur mun kosta að aka yfir nýja Ölfusárbrú
📅 07.10.2026 👁️ 1
500 krónur mun kosta að aka yfir nýja Ölfusárbrú
Um 80 manns vinna við smíði Ölfusárbrúarinnar og er verkið töluvert á undan áætlun. Brúin verður um tvö þúsund tonn að þyngd.Það er allt á fullu við b...
Tékkland tekur ekki þátt í Eurovision
📅 07.10.2026 👁️ 1
Tékkland tekur ekki þátt í Eurovision
Tékkneska ríkisútvarpið tilkynnti í dag að Tékkland verði ekki meðal þátttakenda í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, eða Eurovision, á næsta ári...
Hefur áhyggjur af því að félög sem sömdu ekki í gær reyni að heimta meira
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hefur áhyggjur af því að félög sem sömdu ekki í gær reyni að heimta meira
Hagkerfið er byrjað að kólna; hagvöxtur minnkar og atvinnuleysi eykst, og von er til þess að verðbólga fari minnkandi á næsta ári þar sem áhrif olíuve...
Hefur áhyggjur af að félög sem sömdu ekki í gær reyni að heimta meira

Police rescue young woman from sea in Playa de las Américas
📅 07.10.2026 👁️ 1
Police rescue young woman from sea in Playa de las Américas
National Police officers have rescued a 24-year-old woman who was struggling to stay afloat in the sea off Playa de las Américas in South TenerifeThe ...
Raflína í Moldóvu nefnd eftir Trump
📅 07.10.2026 👁️ 1
Raflína í Moldóvu nefnd eftir Trump
Ný raflína sem tengja á Moldóvu við Rúmeníu verður nefnd eftir Donald Trump Bandaríkjaforseta og mun bera nafnið „Trump Liberty Line“.Bandaríkin leggj...
Bein út­sending: Á­skoranir á norður­slóðum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Á­skoranir á norður­slóðum - Vísir
„Norðurslóðir standa nú frammi fyrir töluverðum áskorunum. Loftslagsbreytingar eru að endurmóta vistkerfi með áður óþekktum hraða, á sama tíma og auki...
Samfylking og Framsókn ræða meirihlutamyndun í Suðurnesjabæ
📅 07.10.2026 👁️ 1
Samfylking og Framsókn ræða meirihlutamyndun í Suðurnesjabæ
Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn í Suðurnesjabær eiga í óformlegum samtölum um myndun nýs meirihluta. Meirihluti Samfylkingar og D-listans sprakk ...
Banda­rískir her­menn í út­göngu­banni eftir morð - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Banda­rískir her­menn í út­göngu­banni eftir morð - Vísir
Devin Jacob Ballard, tuttugu ára liðþjálfi í bandaríska hernum, er grunaður um að hafa orðið Önna Yagi, 39 ára japanskri konu, að bana á hóteli í borg...
Plans to limit peak-season flight prices in the Canary Islands
📅 07.10.2026 👁️ 1
Plans to limit peak-season flight prices in the Canary Islands
Temporary price caps on flights between the Canary Islands and mainland Spain are being considered to help residents facing soaring fares during Chris...
Glap­ræði að hafna væntan­legri launa­hækkun - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Glap­ræði að hafna væntan­legri launa­hækkun - Vísir
Í gær undirritaði Breiðfylkingin, sem samanstendur af Starfsgreinasambandinu, Eflingu, Samiðn og Byggiðn, undir framlengingu kjarasamninga. Aðspurð hv...
Brynhildur fagnaði 26 árum í Sykursalnum
📅 07.10.2026 👁️ 2
Brynhildur fagnaði 26 árum í Sykursalnum
Áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir fagnaði 26 ára afmæli sínu í Sykursalnum í Grósku.Hún hélt heljarinnar búningapartí og var klædd sem poppdí...
Vin­sældirnar skipti miklu máli fyrir arf­leifð Johns Snorra - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Vin­sældirnar skipti miklu máli fyrir arf­leifð Johns Snorra - Vísir
Heimildarmynd um hinstu för íslenska fjallgöngugarpsins Johns Snorra upp á tind fjallsins K2 að vetri til árið 2021 kom út á dögunum á streymisveitu A...