Tómas kvaðst hafa starfað á fjölmiðlum í tuttugu ár. Honum þætti erfitt að sætta sig við að fá ekki lengur sjónvarpsfréttir klukkan hálfsjö á kvöldin, eftir að Sýn hætti útsendingu þeirra í lok ágúst.
Hann rifjaði upp afgreiðslu Alþingis á lögum um stuðning við einkarekna fjölmiðla í vor. „Og svo eftir að við afgreiddum hér enn eina hengingarólina til íslenskra fjölmiðla í vor liðu 80 dagar þar til að það fór undir,“ sagði hann um sjónvarpsfréttir Sýnar.
Frá afgreiðslu frumvarpsins í þingnefnd 12. júní til síðasta sjónvarpsfréttatímans 31. ágúst liðu 80 dagar. Alþingi samþykkti lögin 19. júní, 73 dögum fyrir síðasta fréttatímann. Sýn heldur áfram að flytja fréttir á Vísi og Bylgjunni.
Tómas vék síðan að frétt Vísis um fyrirhugað 2,8 milljarða króna tekjuþak Rúv. Hann sagði tekjurnar aðeins einu sinni hafa farið yfir markið í samanburði síðustu fjögurra ára og kallaði þakið hluta af „hraðbankaáformum“ ráðherra.
„Þetta er því í raun gerviþak,“ sagði Tómas. Hann taldi það breyta afar litlu um það sem hann kallaði „ryksugu Rúv á íslenskum auglýsingamarkaði“.
Samanburður Vísis byggði á auglýsingatekjum sem ráðuneytið færði allar á verðlag maí 2026. Tekjur ársins 2022 voru þá þær einu sem fóru yfir 2,8 milljarða króna. Frumvarpið miðar hins vegar við tekjur af viðskiptaboðum, sem ná einnig til kostunar og vöruinnsetninga. Fari þær tekjur yfir markið yrði umframfjárhæðin dregin frá framlagi ríkisins til Rúv. Frumvarpið gerir jafnframt ráð fyrir að framlagið lækki um fjárhæð sem nemur tíu prósentum af meðaltekjum af viðskiptaboðum síðustu fjögurra ára, hvort sem þakinu er náð eða ekki.
Tómas sagði áformin í grunninn fela í sér 250 til 280 milljóna króna viðbótarstuðning við einkarekna fjölmiðla. Hann taldi slíkan stuðning geta orðið „bjargráð fyrir minni fjölmiðla“ en dygði ekki til að byggja upp stóran miðil.
„Við munum aldrei undir þessum áformum fá annan sjónvarpsfréttatíma, aldrei aftur annan stóran fjölmiðil, og það er ekki gott,“ sagði hann. Tómas kallaði áformin „ekkert annað en sýndarmennsku“ og sagði þau lýsa skilningsgjá milli ráðuneytisins og íslenskra fjölmiðla.