Íslandsmeistarar Víkings úr Reykjavík verða í efri styrkleikaflokki þegar dregið verður í 1. umferð í undankeppni Meistaradeildar karla í fótbolta.
Dregið verður þann 16. júní en Víkingar geta einungis mætt liðum í neðri styrkleikaflokknum. 14 lið eru í hvorum flokki.
Víkingar geta mætt Inter Club d'Escaldes frá Andorra, Levski Sofia frá Búlgaríu, Ararat-Armenia frá Armeníu, Sabah frá Aserbaísjan, Zalgiris frá Litáen, Sutjeska frá Svartfjallalandi, Györ frá Ungverjalandi, Iberia 1999 frá Georgíu, Egnatia frá Albaníu, Floriana frá Möltu, Tre Fiori frá San Marínó, Vardar frá Norður-Makedóníu, Vitebsk frá Hvíta-Rússlandi eða Atert Bissen frá Lúxemborg.
Víkingar mættu Inter Club d'Escaldes árið 2022 og Egnatia árið 2024 og höfðu sigur í báðum einvígjum.
Ásamt Víkingi eru meðal annars KÍ Klaksvík frá Færeyjum, KuPS frá Finnlandi og Shamrock Rovers frá Írlandi í efri styrkleikaflokknum.
Fyrri leikirnir fara fram 7. og 8. júlí og seinni leikirnir fara fram 14. og 15. júlí.