Það eru aðeins nokkrar vikur í að gamla síldarbræðslan á Borgarfirði eystri fyllist á ný af tónlist, gestum og þeirri stemningu sem hefur gert Bræðsluna að einni ástsælustu tónlistarhátíð landsins. Þótt hátíðin hafi vaxið jafnt og þétt frá stofnun hennar árið 2004 segir einn skipuleggjenda hennar að uppskriftin hafi í raun lítið breyst.Magni Ásgeirsson, einn stofnenda og skipuleggjenda Bræðslunnar, var í viðtali við hlaðvarpið Popparasögur þar sem hann ræddi um hátíðina og dagskrána í ár.
„Við erum með Skandal og svo Ásgeir með kassagítar“