Vesturport leikhópurinn heldur flóamarkað á morgun, laugardag, frá kl. 13-15 við höfuðstöðvar Eimskips að Sundabakka 2 í Reykjavík.
„Í rúm 20 ár höfum við ferðast með leikmyndir og búninga um allan heim. Eimskip hefur verið dyggur samstarfsaðili í öll þessi ár og mjög mikilvægur hlekkur útrás okkar, sem er hvergi nærri lokið. En nú ætlum við að rýma til og halda heljarinnar flóamarkað þar sem sumt verður gefins og annað til sölu.
Leikmyndir, búningar, leikmunir úr Rómeó og Júlíu, Woyzeck, Hróa Hetti og Faust svo fátt eitt sé nefnt,“ segir Gísli Örn Garðarsson leikari, leikstjóri og einn meðlima Vesturports. Deilir hann nokkrum myndum frá leiksýningum.

Í dag var svo heldur betur handagangur í öskjunni þegar gámar voru tæmdir og flóamarkaðinum stillt upp.
„Í dag bretti mannskapurinn upp ermar til að gera klárt og sjá hvað var í gámunum. Kíkið endilega við og grípið eitthvað spennandi úr öllum þessu stórkostlegu sýningum sem þau hafa sett á laggirnar og flutt heimshorna á milli. Samstarf Vesturports og Eimskips nær til ársins 2004,“ segir Hulda Bjarnadóttir forstöðumaður deildar Menningar og miðlunar hjá Eimskip.