Vestur-íslendingafélagið Icelandic Roots tók fyrstu skóflustunguna að húsi fyrir starfsemi félagsins í byrjun ágúst. Húsið verður reist í bænum Mountain í Norður-Dakota í Bandaríkjunum.
Byggingin gengur undir nafninu The Icelandic Rootshús. Þar verður hægt að fræðast um vestur-íslenskan menningararf og ættfræði í Kanada og Bandaríkjunum.
Fyrstu skóflustunguna tóku sjálfboðaliðar fyrir félagið í byrjun ágúst. Um 200 manns voru samankomin og þar á meðal voru um 50 gestir frá Íslandi.
Það eru 148 ár síðan Íslendingar settust að í Dakota. Icelandic Rootshúsið verður reist á landi sem séra Páll Þorláksson nam árið 1878. Mountain er norðarlega í fylkinu, í um 40 mínútna aksturfjarlægð frá kanadísku landamærunum.
Stefnt er að því að opna það á Íslendingadaginn á næsta ári. Vestur-Íslendingar minnast upprunans 2. ágúst ár hvert, daginn sem Kristján 9. Danakonungur færði Íslendingum nýja stjórnarskrá.