Áætlun Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) og Icelandair um að klára kjarasamninga fyrir daginn í dag gekk ekki eftir.
Félögin sammæltust um það í júní að vinna eftir verkáætlun ríkissáttasemjara undir friðarskyldu. Markmið hennar var að ljúka viðræðum um endurnýjun kjarasamninga fyrir 15. september.
Viðræðurnar eru enn í gangi. Þær hafa að sögn ríkissáttasemjara gengið ágætlega og hann kveðst bjartsýnn.
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir ekki liggja fyrir hversu langt sé í land í viðræðunum og hefur ekki lagt fram tillögu um nýja tímaáætlun.
„Meðan við erum í samtölum og getum átt jákvætt samstarf um verkefnið reynum við að halda áfram,“ segir hann.
Fulltrúar flugmanna og Icelandair funduðu í gær og hittast aftur síðar í dag. Ríkissáttasemjari segir fólk viljugt að halda áfram og málin þokist í rétta átt.