„Verið sjálfsörugg varðandi sjávarútveginn”
Dr. Funda Tekin er sérfræðingur í stækkun Evrópusambandsins. Hún segir að vegna landræðilegrar legu Íslands þá gæti Evrópusambandið séð hag í að ná samningum núna. Íslendingar eigi að vera sjálfsöruggir og ekki síst hvað varðar sjávarútveginn. Tæknilega séu aðildarviðræður þó ekki samningaviðræður.
Dr. Funda Tekin fann stund aflögu til að svara nokkrum spurningum sem brenna á mörgum hér á landi þessa dagana. Hún er forstöðumaður Institut für Europäische Politik (IEP) í Berlín, hugveitu sem rannsakar Evrópusamruna og stefnumótun Evrópusambandsins. Þá er hún einnig varaforstöðumaður og verkefnastjóri Horizon 2020 verkefnisins „Framtíð sambands ESB og Tyrklands: Kortlagning á gangverki og prófun á atburðarásum“ (FEUTURE) við Rannsóknamiðstöð Tyrklands og Evrópusambandsins (CETEUS) við Háskólann í Köln.
Rannsóknarsvið hennar og sérþekking fela í sér stækkun ESB almennt og samskipti ESB og Tyrklands sérstaklega. Sem og svæði frelsis, öryggis og réttlætis, sveigjanleika og aðgreiningu í aðild að ESB, aukið gildi Evrópu – og áhrif sáttmálabreytinga og stofnanavæðingar ESB.
Fyrsta spurning er á þessa leið:
Við ætlum að halda þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst. Íslenska þjóðin mun þá kjósa um hvort eigi að hefja að nýju aðildarviðræður við ESB – sem hófust á árunum 2009 til 2013, í rauninni á …