Lögreglan á Vesturlandi veitti ökumanni langa eftirför frá Vegamótum á Snæfellsnesi og alla leið í Skorradal skömmu fyrir hádegi í dag. Stöðva átti ökumanninn fyrir of hraðan akstur, en hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu.
Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, segir að naglamottum hafi verið beitt en ökumaðurinn komist fram hjá þeim þar sem hann var á sérútbúnum bíl.
Fjöldi lögreglubíla auk sjúkrabíla og þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út. Lögregla lokaði fjölda vega vegna eftirfararinnar og um tíma var löng röð við brúna inn í Borgarnes.
Ásmundur segir að ökuhraði í eftirförinni hafi ekki verið eins mikill og oft sé í svona atvikum.
Bíllinn hafnaði loks utan vegar við Skorradalsvatn, sem er um 80 kílómetrum frá Vegamótum á Snæfellsnesi. Ökumanninum virtist ekki hafa orðið meint af en var þó fluttur á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi til skoðunar. Þaðan verður hann fluttur á lögreglustöð.
Fréttin var uppfærð með nánari upplýsingum.