Veðurstofan varar við hvassri sunnanátt víða um land í nótt og á morgun. Búist er við sterkum vindhviðum á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi og norðanverðu miðhálendinu og hafa gular viðvaranir verið gefnar út.
Í tilkynningu Veðurstofunnar segir að aðstæður geti orðið varhugaverðar fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind og eru vegfarendur hvattir til að fylgjast með og meta aðstæður áður en lagt er af stað.