Gular viðvaranir verða í gildi frá klukkan ellefu í kvöld þriðjudag til klukkan átta annað kvöld, miðvikudags, vegna hvassviðris. Viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir Vesturland, Vestfirði, Norðurland og norðanvert miðhálendið. Búist er við 13-20 metrum á sekúndu.
Í ábendingu frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar segir að búast megi við hviðum frá 25 -35 metrum á sekúndu. Slíkur vindur skapi varhugaverðar aðstæður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind, sem og tengivagna. Vegfarendur eru hvattir til að fylgjast með veðurspám og útgefnum viðvörunum.
Síðdegis á morgun lægi dálítið á Vesturlandi og Vestfjörðum. Eins sé búist við hvassviðri á suðausturhorninu eftir hádegi og fram á nótt, frá austanverðum Öræfum og að sunnanverðum Austfjörðum.