Varnargarðar í Grindavík reyndust ríkislögreglustjóranum ofviða
⚠️ Eldri en 6 mánuðir

Varnargarðar í Grindavík reyndust ríkislögreglustjóranum ofviða

Varnargarðar í Grindavík reyndust ríkislögreglustjóranum ofviða

Varnargarðar í Grindavík reyndust ríkislögreglustjóranum ofviða

Ríkislögreglustjóri hafði ekki nauðsynlega þekkingu og burði til þess að fara í jafn umfangsmiklar og flóknar framkvæmdir og varnargarða í Grindavík tengdar eldgosunum þar í bæ. Það hafi verið embættinu beinlínis ofviða. Þetta er það sem fram kemur í skýrslu Ríkisendurskoðunar þar sem varnargarðar sem voru reistir í Grindavík eru skoðaðir af embættinu.

Lokaskýrsla um varnargarðana var birt í dag. Niðurstaðan var í stuttu máli sú að verka- og ábyrgðarskipting þurfi að vera skýr í slíkum framkvæmdum, ríkisaðila þurfi með reynslu og burði til stórframkvæmda eins og byggingu varnargarðanna og að endingu þurfi að skilgreina mikilvæga innviði betur, en efnahags- og fjármálaráðherra hefur fengið dómkvadda matsmenn til þess að kanna hvort þeir sem nutu góðs af varnaraðgerðum taki þátt í kostnaði. Það hafi verið óljóst og umtalsverður kostnaður féll á ríkissjóð án þess að þetta atriði væri skýrt, en heildarkostnaður vegna garðanna reyndist um 12 milljarðar þegar uppi var staðið. Þar af fór á sjöunda milljarð í varnargarða við Svartsengi.

Harðorð skýrsla

Skýrslan er tiltölulega harðorð þegar kemur að stöðu embættis ríkislögreglustjóra en Ríkisendurskoðun lagði fyrir fimm rannsóknarspurningar við gerð úttektarinnar.

Þær voru eftirfarandi:

  1. Var skýr ábyrgðar- og hlutverkaskipting milli almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, Vegagerðarinnar og annarra sem fóru með framkvæmdirnar?

  2. Hvernig hefur verið staðið að eftirliti með framvindu og kostnaði varnargarðanna?

  3. Var kostnaður í samræmi við kostnaðaráætlanir sem lágu fyrir áður en framkvæmdir við hvern áfanga varnargarðanna hófust?

  4. Hafa framkvæmdir á grundvelli laga nr. 84/2023 uppfyllt markmið laganna um að verja mikilvæga innviði og aðra almannahagsmuni á Reykjanesskaga?

  5. Er til staðar virkt eftirlit sem styður við fullnægjandi heimtur forvarnagjalds sem sett var á vegna verndar mikilvægra innviða á Reykjanesskaga?

Ríkislögreglustjóri kaus að svara ekki fyrstu spurningunni. Þá benti embættið á að starfsmenn þess búi ekki yfir nauðsynlegri sérfræðiþekkingu er varða umfangsmiklar verklegar framkvæmdir á borð við varnargarða. Eðlilegra sé því að aðilar sem hafi þekkingu og reynslu af stórum framkvæmdum sem krefjast hönnunar, verkstjórnunar og flókins undirbúnings fari með slík verkefni.

Í svari embættisins segir orðrétt:

„Eins hefur þetta skapað mikið álag á fjármálastjórn hjá embættinu því gríðarlegar fjárhæðir hafa runnið í gegnum fjárlagaviðföng embættisins. Þá vaknar sú spurning um nauðsynlega sérfræðiþekkingu og hvort það sé eðlilegt að almannavarnadeild hafi forgöngu um kaup á slíkri þjónustu og fjármálalega umsýslu stórra framkvæmda.“

Niðurstaða Ríkisendurskoðunar við þessu svari er eftirfarandi:

„Það er niðurstaða Ríkisendurskoðunar að ríkislögreglustjóri hafi ekki haft nauðsynlega þekkingu og burði til að fara með jafn umfangsmiklar og flóknar verklegar framkvæmdir og lög [..] kváðu á um. Gögn málsins gefa til kynna að verkefnið hafi af ýmsum ástæðum reynst embætti ríkislögreglustjóra ofviða.“

Óljós verka- og ábyrgðarskipting

Í niðurstöðu Ríkisendurskoðunar er það jafnframt gagnrýnt að fyrirkomulag um verka- og ábyrgðarskiptingu hafi verið óskýrt.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Náttúruhamfaratrygging Íslands áttu árið 2021 frumkvæði að stofnun vinnuhóps um varnir mikilvægra innviða á Reykjanesskaga, innviðahópsins svokallaða, sem kallaður var reglulega saman í öndverðu. Hópurinn sinnti ráðgjafarhlutverki vegna varna á svæðinu.

Árin 2021–2025 var hópurinn samansettur af fulltrúum verkfræðistofanna Verkís og Eflu, Háskóla Íslands og Veðurstofu Íslands. Fulltrúar almannavarnadeildar sátu suma fundi hópsins en Verkís hafði í umboði deildarinnar umsjón með skipulagi funda, fundarstjórn og ritun fundargerða, ásamt því að halda utan um öll vinnugögn hópsins og hönnunar- og framkvæmdateymisins.

Athygli er vakin á því að fulltrúar Háskóla Íslands og Veðurstofu Íslands í innviðahópnum sátu ekki í hönnunar- og framkvæmdateymi hans. Á fundum Ríkisendurskoðunar með þeim kom fram að þeir hafi í mörgum tilfellum ekki séð tillögur teymisins til ríkislögreglustjóra um uppbyggingu varnargarða fyrr en eftir að ákvörðun dómsmálaráðherra lá fyrir og/eða framkvæmdir voru hafnar.

Samkvæmt samkomulagi ríkislögreglustjóra og Vegagerðarinnar átti stofnunin að vera þátttakandi í innviðahópnum. Þrátt fyrir það átti hún ekki fastan fulltrúa í hópnum. Er þetta eitt dæmi af fleirum um að ekki hafi verið farið eftir þeirri verka- og ábyrgðarskiptingu sem kveðið var á um í samkomulaginu.

Hvað eru mikilvægir innviðir?

Þegar kemur að innviðum og bættu eftirliti með innheimtum kemur fram að umtalsverður kostnaður hafi fallið á ríkissjóð vegna framkvæmda við varnargarðana án þess að

það liggi ljóst fyrir hvaða þýðingu hugtakið „mikilvægir innviðir“ hefur í samhengi almannavarna og hvaða innviði skyldi verja samkvæmt lögum. Verði farið í frekari uppbyggingu varnargarða eða aðrar stórtækar framkvæmdir á Reykjanesskaga vegna náttúruvár er mikilvægt að skilgreina nánar, að því marki sem mögulegt er, hvaða innviði skuli vernda, að því er fram kemur í skýrslu Ríkisendurskoðunar.

Spurningamerki hafa verið sett við þá tilhögun að Bláa lónið til að mynda hafi ekki tekið þátt í kostnaði vegna varnargarðanna sem kostuðu skattgreiðendur um 12 milljarða króna í heildina. Kostnaður vegna Blálónsgarðsins er sagður vera 1,7 milljarðar og er þá ekki viðbótarkostnaður tekinn með. Kostnaður er því um 2 milljarðar árið 2023, en Bláa lónið greiddi arð upp á tæpa 3 milljarða fyrir rekstrarárið 2023.

RÚV greindi frá því á síðasta ári að Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hafi farið þess á leit við Héraðsdóm Reykjaness að dómkvaddir matsmenn verði fengnir til að meta kostnað ríkissjóðs af þeim aðgerðum sem ráðist var í til að draga úr eða koma í veg fyrir tjón vegna eldsumbrota í nágrenni Grindavíkur. Ráðherrann vill skoða hvort rétt sé að þeir aðilar sem eiga hagsmuna að gæta skuli bera hluta af kostnaði ríkissjóðs vegna þessara aðgerða. Þar er meðal annars átt við HS Orku, HS Veitur og Bláa lónið. Þá telur ríkissjóður sig einnig eiga kröfu á hendur Náttúruhamfaratryggingu Íslands.

Svartsengisgarðar dýrari en Grindavíkurgarðar

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar segir að samkvæmt samantekt hönnunar- og framkvæmdateymisins hafi áætlaður heildarkostnaður Svartsengisgarðanna svokölluðu numið um 6,9 milljörðum í árslok 2025. Áætlaður kostnaður varnargarða við Grindavík nam þá 5 milljörðum.

Þegar kemur að svokölluðu forvarnargjaldi kemur í ljós að eftirlit með innheimtu slíks er ekki til staðar. Í skýrslunni segir að virkt eftirlit sem tryggir yfirsýn og skilvirka og fullnægjandi innheimtu forvarnargjalds sé hvorki til staðar hjá fjármála- og efnahagsráðuneyti né Fjársýslu ríkisins. Ráðuneytið hefur ekki sannreynt að gjaldið sé greitt af öllum brunatryggðum fasteignum hér á landi.

Þegar úttekt Ríkisendurskoðunar fór fram vann ráðuneytið, í samstarfi við Fjársýsluna, að verklagi sem á að tryggja virkt eftirlit og styðja við fullnægjandi heimtur. Ríkisendurskoðun hvetur ráðuneytið og Fjársýsluna til að ljúka þeirri vinnu sem fyrst. Tryggja þarf að forvarnagjald skili sér með fullnægjandi hætti í ríkissjóð og að fyrir hendi sé virkt eftirlit með innheimtunni.

Skynsamt að leita til Vegagerðarinnar

Vegagerðin kemur ágætlega út úr skoðun Ríkisendurskoðunar. Í skýrslunni segir Ríkisendurskoðun að það hafi verið skynsöm ráðstöfun þegar ríkislögreglustjóri fól Vegagerðinni hlutverk verkkaupa ríkisins. Vegagerðin býr yfir sérþekkingu á verklegum framkvæmdum, samningagerð vegna þeirra og fjárhagslegri umsýslu framkvæmda af álíka stærðargráðu.

Enga slíka sérþekkingu er að finna hjá ríkislögreglustjóra. Vegagerðin var því betur til þess fallin að gæta hagsmuna ríkissjóðs. Áður en Vegagerðin tók við hlutverki verkkaupa fyrir hönd ríkisins hafði verkfræðistofan Verkís

stýrt vali á verktökum fyrir hönd almannavarnadeildar. Vegagerðin þurfti því í desember 2023 að semja við verktaka sem þegar voru komnir að verkinu. Í svörum Vegagerðar kom fram að stofnunin hafi í desember 2023 náð fram lækkun fyrirliggjandi taxta og þar af leiðandi hagstæðari samningum fyrir ríkið. 

#grindavík #ofviða #reyndust #ríkislögreglustjóranum #varnargarðar

Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/26514/varnargardar-i-grindavik-reyndust-rikislogreglustjoranum-ofvida/

📰 Aðrar fréttir

Vill að ríkið semji um fast verð á innanlandsflugmiðum
📅 26.10.2026 👁️ 2
Vill að ríkið semji um fast verð á innanlandsflugmiðum
Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði og sérfræðingur í byggðaþróun, segir aðalvandamálið við Loftbrúna ekki hvort ríkið niðurgreiði flugmiða um...
Chris Mason: The Budget is imminent as tricky things pile up for Burnham
📅 26.10.2026 👁️ 2
Chris Mason: The Budget is imminent as tricky things pile up for Burnham
From Brexit debates to North Sea oil, there is plenty getting the cabinet, the Labour Party and the country talking.
Lét lítinn pug hund dangla af svölunum á fimmtu hæð - „Við munum ekki láta svona hegðun líðast“
📅 26.10.2026 👁️ 3
Lét lítinn pug hund dangla af svölunum á fimmtu hæð - „Við munum ekki láta svona hegðun líðast“
Lögreglan í El Salvador hefur handtekið fyrrverandi knattspyrnumann fyrir gróft dýraníð. Maðurinn lét lítinn hund dangla fram af svölum og tók það upp...
Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum - Vísir
Luiz Inácio Lula da Silva Brasilíuforseti tryggði sér fjórða kjörtímabilið í seinni umferð kosninganna í gær. Hann hlaut 51,79 prósent gildra atkvæða ...
Harry Kane: Bayern Munich and England striker wins Ballon d'Or after record season
📅 26.10.2026 👁️ 2
Harry Kane: Bayern Munich and England striker wins Ballon d'Or after record season
Harry Kane becomes the first English player to win the Ballon d'Or since Michael Owen in 2001 after being crowned the world's best player at a ceremon...
Healey vows cheaper marmalade and gherkins in pre-Budget package
📅 26.10.2026 👁️ 3
Healey vows cheaper marmalade and gherkins in pre-Budget package
The chancellor will axe tariffs on some staples as part of plans to give households "breathing space".
Busted's James Bourne says 'hero' brother saved his life with kidney donation
📅 26.10.2026 👁️ 2
Busted's James Bourne says 'hero' brother saved his life with kidney donation
The guitarist says doctors had given him "a few years left to live", but is now recovering well.
„Kannski hefur Evrópa einfaldlega verið að tala vitlaust tungumál við Trump“
📅 26.10.2026 👁️ 2
„Kannski hefur Evrópa einfaldlega verið að tala vitlaust tungumál við Trump“
Sigvaldi Einarsson, frumkvöðull og áhugamaður um alþjóðamál, veltir því fyrir sér í pólitískri ádeilu hvort staðan í heiminum væri öðruvísi hefði Evró...
Kominn yfir fertugt? Þetta eru 10 mikilvægustu æfingarnar fyrir restina af lífi þínu
📅 26.10.2026 👁️ 2
Kominn yfir fertugt? Þetta eru 10 mikilvægustu æfingarnar fyrir restina af lífi þínu
Hvaða æfingar myndirðu velja ef þú mættir aðeins gera tíu það sem eftir væri ævinnar? Jeff Cavaliere, maðurinn á bak við ATHLEAN-X, hefur tekið saman ...
40 ár frá vígslu Hallgrímskirkju
📅 26.10.2026 👁️ 2
40 ár frá vígslu Hallgrímskirkju
Hallgrímskirkja er eitt þekktasta kennileiti borgarinnar og var formlega vígð þann 26. október 1986. Hátíðardagskrá hefur farið fram undanfarna viku í...
Óráðlegt að hætta við nýtt einkunnakerfi þrátt fyrir óvissu
📅 26.10.2026 👁️ 2
Óráðlegt að hætta við nýtt einkunnakerfi þrátt fyrir óvissu
„Ég held að það væri óráð að reyna að hætta við,“ sagði Jón Páll Haraldsson, skólastjóri Laugalækjarskóla og varaformaður Skólastjórafélags Íslands, u...
Hrósar venjulega ekki stjórnmálamönnum en gerir undantekningu með Lula
📅 26.10.2026 👁️ 4
Hrósar venjulega ekki stjórnmálamönnum en gerir undantekningu með Lula
Kristinn Hrafnsson fjölmiðlamaður og upplýsingafulltrúi Wikileaks segist venjulega fara varlega í að hrósa stjórnmálamönnum en í ljósi góðrar reynslu ...
Beijing til Keflavíkur í einni ferð í fyrsta sinn
📅 26.10.2026 👁️ 4
Beijing til Keflavíkur í einni ferð í fyrsta sinn
Fyrsta beina flugið á milli Kína og Keflavíkur, með viðkomu í Kaupmannahöfn, var í dag. Sendiherra Kína segir þetta mikla breytingu í samskiptum ríkja...
Kosningar í Ísrael: Þjóð á kross­götum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Kosningar í Ísrael: Þjóð á kross­götum - Vísir
Kosningarnar snúast að verulegu leyti um Benjamín Netanjahú forsætisráðherra sjálfan. Fréttaskýrendur í Ísrael og annars staðar líta margir svo á að á...
Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úr­slitum - Vísir

Blendnar tilfinningar fyrir leitina að Lúðvík
📅 26.10.2026 👁️ 4
Blendnar tilfinningar fyrir leitina að Lúðvík
Bróðir manns sem féll niður í sprungu sem myndaðist í Grindavík segist þakklátur fyrir að ákveðið hafi verið að ráðast í leit að líki bróður hans. Lei...
Sama jarmið í sauð­fé og ferða­mönnum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Sama jarmið í sauð­fé og ferða­mönnum - Vísir
Þetta heyrðum við á bænum Gerði þegar við ræddum við þau Björn Borgþór Þorbergsson og Þóreyju Bjarnadóttur fyrir þáttinn Um land allt. Þau eru í hópi ...
Minni byggðalög líði fyrir aukna miðstýringu lögreglu
📅 26.10.2026 👁️ 4
Minni byggðalög líði fyrir aukna miðstýringu lögreglu
Áform dómsmálaráðherra um að sameina lögregluembætti í þrjú mæta harðri mótstöðu á landsbyggðinni. Dómsmálaráðherra segir lítil embætti ekki ná utan u...
Oscar-winning producer says BBC gave her £400,000 payout after she raised antisemitism concerns
📅 26.10.2026 👁️ 3
Oscar-winning producer says BBC gave her £400,000 payout after she raised antisemitism concerns
The BBC says it did not uphold any of the allegations of antisemitism but accepted there were "shortcomings" in how it treated Lucie Kon.
Á ég að segja syni mínum hræðilegan sannleikann um ömmuna sem hann elskaði?
📅 26.10.2026 👁️ 4
Á ég að segja syni mínum hræðilegan sannleikann um ömmuna sem hann elskaði?
Á að segja sannleikann um erfiða fortíð eða á að hlífa tilfinningum ástvina? Það er hægt að lifa eftir mottóinu um sannleikurinn sé sagna bestur en vi...
Hvað veistu um… pitsur? - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Hvað veistu um… pitsur? - Vísir
Pitsur hafa fyrir löngu fest sig í sessi sem einn vinsælasti skyndibiti heims og njóta mikilla vinsælda á Íslandi, hvort sem hún er borðuð á veitingas...
Ó­metan­legt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 2
Ó­metan­legt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum - Vísir
Brynjar Steinn er fæddur árið 1999 og öðlaðist mikla frægð á samfélagsmiðlinum Snapchat á sínum tíma, þar sem notandanafnið hans var einmitt Binni Gle...
Biskupar sjá eftir bæna­stund með Trump - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Biskupar sjá eftir bæna­stund með Trump - Vísir
Aðstoðarkona Donalds Trump Bandaríkjaforseta og ráðgjafi hans í samskiptum birtu myndband af tólf biskupum í bænastund með forsetanum er þeir sóttu ha...
Meirihluti kjósenda valdi „Serbíu frekar en mafíu“
📅 26.10.2026 👁️ 4
Meirihluti kjósenda valdi „Serbíu frekar en mafíu“
Kjósendur völdu á milli Serbíu eða mafíu í þingkosningum sem fóru fram í landinu í gær, að sögn kjósanda frá Íslandi. Stúdentahreyfing vann stórsigur ...
Líkamshlutar manns fundust í Rínarfljóti
📅 26.10.2026 👁️ 4
Líkamshlutar manns fundust í Rínarfljóti
Þrír menn fundu poka sem innihéldu fótlegg af manni þegar þeir gengu meðfram árbakka Rínarfljóts í Stein, skammt frá Basel í Sviss, í gær.Lögreglan í ...
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir...
Slá skjaldborg um sveitarstjórann eftir spurningar um meint vanhæfi vegna tengsla við Samherja
📅 26.10.2026 👁️ 4
Slá skjaldborg um sveitarstjórann eftir spurningar um meint vanhæfi vegna tengsla við Samherja
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar sammæltist um það á fundi sínum á fimmtudag að lýsa yfir fullu trausti til Katrínar Sigurjónsdóttur sveitarstjóra í kjö...
Biskupar biðjast afsökunar á fundinum með Trump – „Ég finn til mikillar sorgar“
📅 26.10.2026 👁️ 4
Biskupar biðjast afsökunar á fundinum með Trump – „Ég finn til mikillar sorgar“
Tveir kaþólskir biskupar hafa beðist afsökunar á fundi sínum með Donald Trump Bandaríkjaforseta. Birt var ljósmynd af þeim að biðja með honum.Breska b...
Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn - Vísir
Koenig lést á heimili sínu í Hollywood í gær, segir í umfjöllun Variety.  „Í dag syrgjum við Walter Koenig. Hæfileikar hans, hlýja og ógleymanlegur fl...
Bilaður bíll í Hvalfjarðargöngum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Bilaður bíll í Hvalfjarðargöngum
Hvalfjarðargöng voru lokuð vegna bilaðs bíls í skamma stund á sjöunda tímanum samkvæmt vef Vegagerðarinnar. Þau hafa verið opnuð á ný.
Eftirspurn eftir meiri raforku aðallega frá gagnaverum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Eftirspurn eftir meiri raforku aðallega frá gagnaverum
Heimili á Íslandi nota um 5% af allri raforku sem hér er framleidd og stóriðjan tæplega 80%. Samkvæmt nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins nota gagnaver...
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum í september
📅 26.10.2026 👁️ 4
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum í september
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum á Íslandi í september. Deildarstjóri segir mikinn meirihluta hafa drepist á Reyðarfirði, vegna marglytta sem her...
„Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
„Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ - Vísir
Breytingar á svokallaðri Loftbrú, um niðurgreiðslu flugfargjalda fyrir íbúa á landsbyggðinni, eiga að taka gildi 1. janúar. Ingibjörg segir Loftbrúna ...
Áform ríkisstjórnarinnar lenda verst á þeim sem eiga að njóta ávinningsins
📅 26.10.2026 👁️ 5
Áform ríkisstjórnarinnar lenda verst á þeim sem eiga að njóta ávinningsins
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hyggst stytta hámarkstíma nýrra verðtryggðra húsnæðislána í 25 ár úr 40. Því er ætlað að tryggja að höfuðstóll hækki e...
Vilja að tekið sé meira tillit til hávaða frá Keflavíkurflugvelli
📅 26.10.2026 👁️ 4
Vilja að tekið sé meira tillit til hávaða frá Keflavíkurflugvelli
Minnihluti skipulagsráðs Reykjanesbæjar fer fram á að í nýju aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar verði tekið mið af hljóðvist og samfélagslegum áhrif f...
Lög­regla kölluð til vegna drengjana í Goða­fossi - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 5
Lög­regla kölluð til vegna drengjana í Goða­fossi - Vísir
Greint var frá því í gær að myndband af tveimur bandarískum strákum stökkva ofan í Skjálfandafljót af kletti við Goðafoss hefði verið birt á samfélags...
Lög­regla kölluð til vegna drengjanna í Goða­fossi - Vísir

Jón Gnarr segir Viðreisn í krísu – útilokar ekki að hætta stuðningi við ríkisstjórnina
📅 26.10.2026 👁️ 5
Jón Gnarr segir Viðreisn í krísu – útilokar ekki að hætta stuðningi við ríkisstjórnina
Jón Gnarr þingmaður segir Viðreisn glíma við uppsafnaðan samskiptavanda, skipulagsleysi og pólitískar deilur. Hann hyggst áfram styðja ríkisstjórnina ...
Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 5
Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána - Vísir
Maðurinn hefur verið ákærður fyrir gróft brot á vopnalögum auk vörslu fíkniefna og sprengifimra og eldfimra hluta. Málið verður tekið fyrir í Kalmar n...
Lögregla kölluð til vegna manna sem stukku í hylinn við Goðafoss
📅 26.10.2026 👁️ 5
Lögregla kölluð til vegna manna sem stukku í hylinn við Goðafoss
Myndband af bandarískum piltum stökkva ofan í Skjálfandafljót við Goðafoss hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlinum Instagram.Skjálfandafljót er ...
Calima pre-alert declared across the Canary Islands as air quality worsens
📅 26.10.2026 👁️ 4
Calima pre-alert declared across the Canary Islands as air quality worsens
A pre-alert for calima has been activated across the Canary Islands after a deterioration in air quality was recorded at monitoring stations in Teneri...
Mosfellsbær kefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn
📅 26.10.2026 👁️ 4
Mosfellsbær kefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn
Mosfellsbær hefur skorað formlega á ræstingafyrirtækið iClean að afhenda verkalýðsfélaginu Eflingu gögn sem snúa meðal annars að verklýsingum, tímaútr...
Mosfellsbær krefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn

Machado reiðbúin að ræða við sitjandi forseta
📅 26.10.2026 👁️ 4
Machado reiðbúin að ræða við sitjandi forseta
Maria Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela og handhafi friðarverðlauna Nóbels, er reiðbúin til að setjast niður með sitjandi fors...
Tóku mann af lífi fyrir að hafa tekið þátt í mótmælum 14 ára gamall – Játning knúin fram með pyndingum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Tóku mann af lífi fyrir að hafa tekið þátt í mótmælum 14 ára gamall – Játning knúin fram með pyndingum
Yfirvöld í Sádi Arabíu hafa tekið 29 ára mann að nafni Hassan Zaki al-Faraj af lífi. Hassan tók þátt í mótmælum þegar hann var 14 ára gamall en var sí...
„Þetta fæ ég fyrir að tjá mér um samfélagsmál“
📅 26.10.2026 👁️ 4
„Þetta fæ ég fyrir að tjá mér um samfélagsmál“
„Þetta fæ ég fyrir að tjá mér um samfélagsmál,“ segir Jasmina Vajzovic um færslu Sigfúsar Aðalsteinssonar í hópnum Ísland – Þvert á flokka þar sem han...
Planning a quiet island travel film with Seedance 3.0
📅 26.10.2026 👁️ 4
Planning a quiet island travel film with Seedance 3.0
A folded map rests on a terrace table as the morning light reaches its edge. Beyond the railing, the sea is still a soft strip of colour. For a travel...
„Mestu fjárframlög til Loftbrúar nokkru sinni“
📅 26.10.2026 👁️ 4
„Mestu fjárframlög til Loftbrúar nokkru sinni“
Eyjólfur Ármannsson mun leggja fram breytingu á fyrirhugaðri breytingu á Loftbrú. Í frumvarpi til fjárlaga næsta árs var gert ráð fyrir 600 milljónum ...
Israelis and Americans are both voting - with global consequences
📅 26.10.2026 👁️ 4
Israelis and Americans are both voting - with global consequences
The next fortnight sees two elections on different continents. The outcomes will shape geopolitics and the global economy, writes James Landale
Alma bað Runólf að sinna starfi forstjóra áfram
📅 26.10.2026 👁️ 4
Alma bað Runólf að sinna starfi forstjóra áfram
Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans hefur fallist á beiðni Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra að sinna starfi forstjóra áfram. Fimm ára skipunart...