Manni á fimmtugsaldi tókst að koma sér út úr sérútbúinni fangaflutningabifreið lögreglunnar í Hertford-skíri á Englandi og leggja á flótta þegar lögregla hugðist flytja hann frá Stevenage-lögreglustöðinni í réttarsal í morgun.
Heppni hans hefur þar með verið á þrotum þar sem um 40 mínútum síðar barst lögreglu tilkynning um lík á járnbrautarteinum skammt frá Welwyn North-brautarstöðinni og reyndist strokufanginn liggja þar eftir að hafa orðið fyrir lest.
Rannsókn hafin á tildrögum
Tveir lögreglumenn hlutu skrámur í átökum við manninn þegar hann braut sér leið út úr bifreiðinni og hefur lögregla nú hafið rannsókn á þeim kringumstæðum sem voru fyrir hendi þegar maðurinn varð fyrir lestinni.
Í tilkynningu frá járnbrautarfyrirtækinu National Rail kemur fram að seinkanir hafi orðið á lestum sem fara um Hertford-skíri, Peterborough og Cambridge-skíri vegna slyssins en þær séu nú á áætlun á ný.