Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu segir stjórnvöld hafa upplýsingar um að Rússar séu að undirbúa umfangsmikla árás á landið. Úkraínumenn halda á sama tíma áfram árásum á olíuinnviði í Rússlandi.
Rússar skutu fjölda dróna á Úkraínu um síðustu helgi. Slíkar árásir voru einnig gerðar í fyrrinótt en einn drónanna hafnaði á fjölbýlishúsi í Rúmeníu. Ef marka má skilaboð sem Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu sendi á samfélagsmiðlum í gær er það aðeins forsmekkurinn að því sem koma skal.
Þar segir hann að yfirvöld hafi upplýsingar í gegnum leyniþjónustu um að Rússar séu að undirbúa nýja og umfangsmikla árás. Íbúar eru beðnir um að fylgjast vel með loftvarnarflautum og gæta að eigin öryggi. Herinn vinni í málinu og flugherinn og aðrir í vörnum landsins séu á sólarhringsvakt eins og alltaf.
Rússar í Úkraínu beðnir um að fara
Fyrr í vikunni höfðu rússnesk yfirvöld farið þess á leit við sendifulltrúa sína í Úkraínu að yfirgefa landið vegna yfirvofandi árásar, sem meðal annars myndi beinast að stöðum þar sem ákvarðanir eru teknar, eins og það var orðað. Árásin er talin svar við árás Úkraínumanna á Luhansk, sem Rússar segja að hafi drepið 21 í heimavistarskóla.
Zelensky hefur ítrekað beðið bandamenn sína um að fjármagna og leyfa notkun Patriot eldflaugavarnarkerfis sem geti skotið niður rússneskar eldflaugar – nú síðast í bréfi til Donalds Trump forseta Bandaríkjanna og bandaríska þingsins fyrr í vikunni.
Á sama tíma hafa Úkraínumenn fjölgað árásum bæði á hernumin svæði og rússnesk yfirráðasvæði. Í morgun var úkraínskum dróna skotið á olíuskip í höfn og tvær olíuvinnslur í sunnanverðu Rússlandi að sögn yfirvalda í Moskvu. Eldur kviknaði af þessum sökum en engan sakaði.
Þá voru tveir drepnir þegar úkraínskur dróni hafnaði á bíl í Belgorod-héraði við landamærin að Úkraínu.