Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar vegfarendur við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum norðvestanlands á morgun.
Búist er við að vindhviður geti náð allt að 25 metrum á sekúndu á Steingrímsfjarðarheiði og í Húnafirði og Skagafirði frá hádegi og fram undir miðnætti.
Þá gæti orðið álíka hvasst í austanverðum Öræfum síðdegis og annað kvöld.
Aðstæður geta reynst varhugaverðar fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind, svo sem húsbíla, hjólhýsi og ökutæki með tengivagna.
Vegfarendur á slíkum ökutækjum eru hvattir til að sýna sérstaka aðgát og fylgjast vel með veður- og færðaupplýsingum á umferðin.is.