Skordýr fundust í krukku af chia-fræjum sem eru til sölu í verslun Costro í Garðabæ. Matvælastofnun varar neytendur við einni framleiðslulotu, merktri lotunúmeri CH268X, frá sænska fyrirtækinu Trevissan.
Costco hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness innkallað vöruna.