Húseigendafélagið telur að það þurfi að stíga varlega til jarðar við beitingu leigubremsu sem miðar að því að gera mánaðarlega vísitölutengingu húsaleigu óheimila, eins og áform eru um að lögfesta í húsaleigulögum.
Þetta kemur fram í umsögn Húseigendafélagsins um annan húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar.
Leigan mótast af vöxtunum
Í umsögninni bendir Húseigendafélagið á að leiguverð mótist nú mjög af erfiðu vaxtaumhverfi hér á landi og leigusalar lendi ítrekað í því að ekki sé hægt að hækka leigu í samræmi við rekstrarkostnað leiguíbúða, bæði vegna verðbólgu og nýlegra lækkana á skattaívilnunum. „Þetta hefur ótvírætt slæm áhrif á leigu- og fasteignamarkað og getur leitt til þess að leigusalar gefist á endanum upp á leigustarfsemi sinni, sem leiðir til þess að stór félög kaupi fjölmargar minni íbúðir á markaðnum. Það getur síðan orðið til þess að félögin ráði í reynd yfir leigumarkaðnum, og þar af leiðandi einnig almennu leiguverði. Sú staða getur verið slæm bæði fyrir leigjendur og fyrir einstaklinga sem leigja út eignir sínar.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
Innskráning
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.