Ítalska lögreglan hefur handtekið mann grunaðan um að hafa fyrirskipað sprengjuárás í fyrra gegn Sigfrido Ranucci, einum þekktasta rannsóknarblaðamanni Ítalíu.
Sá sem var handtekinn heitir Valter Lavitola, fyrrverandi ritstjóri, vinur Ranucci og með tengsl við Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu. Lavitola er talinn hafa skipulagt árásina og fengið annan mann til þess að finna fjóra menn í verkið. Fjórmenningarnir voru handteknir í júní fyrir að hafa komið sprengjunni fyrir við heimili blaðamannsins í október í fyrra.
Sprengjan var svo öflug að hún hefði getað banað fólki sem átti leið hjá. Engan sakaði en bifreiðar Ranuccis og dóttur hans skemmdust.
AFP segir lögreglu ekki hafa gefið upp hvert hafi verið tilefni árásarinnar.
Ranucci, sem stýrir vikulegum vinsælum fréttaþætti, Report, á ríkissjónvarpsstöðinni Rai, hefur lýst Lavitola sem sönnum vini. Í þáttum sínum hefur Ranucci tekið fyrir viðkvæm málefni eins og ítölsku mafíuna og spillingu í stjórnmálum. Hann hefur notið verndar lögreglu undanfarin ár.
AFP vísar í ítalska fjölmiðla sem segja að Lavitola hafi vonast til þess að tilræðið myndi sannfæra Ranucci um að færa sig yfir í stjórnmálin.
Lavitola hefur afplánað dóma fyrir spillingu og fjárkúgun. Hann er fyrrverandi blaðamaður og kaupsýslumaður sem á veitingastað í Róm. Hann er þekktur á Ítalíu, sérstaklega fyrir að hafa verið náinn Berlusconi sem lést árið 2023.
Berlusconi var dæmdur í þriggja ára fangelsi á lægra dómstigi árið 2015 fyrir að múta öldungadeildarþingmanni. Lavitola hlaut sama dóm, ákærður fyrir að hafa afhent þingmanninum peningana.