Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, í Reykjavík, upplýsti á blaðamannafundinum að viðræður flokkanna þriggja hefðu hafist á mánudag. Áður hafði hún reynt að mynda fjögurra flokka meirihluta en þær viðræður strandað. Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar útilokaði samstarf við Miðflokkinn í kosningabaráttunni.
Að neðan má sjá upptöku af blaðamannafundinum í Viðey.
Fréttastofa mun fylgjast með gangi mála í allan dag. Ef vaktin birtist ekki að neðan er ráð að endurhlaða síðunni.