Flygildið er af gerðinni Tekever AR5 frá samnefndum evrópskum framleiðanda. Það verður nýtt við löggæslu, leit, björgun og mengunareftirlit á hafsvæðinu umhverfis Ísland og á að efla öryggi við leit og björgun á sjó, að því er kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.
Útgerð drónans er samstarfsverkefni Siglingaöryggisstofnunar Evrópu (EMSA) og Landhelgisgæslunnar. Evrópusambandið fjármagnar verkefnið en EMSA annaðist samninga við Tekever. Gæslan segir að þetta sé í þriðja skipti sem dróni sé gerður út frá Íslandi í þessum tilgangi með stuðningi EMSA.