Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hét því í dag að leggja Alþjóðaglæpadómstólinn (e. International Criminal Court, ICC) niður.
Rubio hefur sakað dómstólinn um að heyja stríð gegn Bandaríkjunum með beitingu alþjóðalaga. Framkvæmdastjóri mannréttindasamtaka gefur ekkert fyrir ásakanir utanríkisráðherrans.
Ríkisstjórn Trumps hefur lengi gagnrýnt dómstólinn
Andstaða bandarískra stjórnvalda við Alþjóðaglæpadómstólinn nær aftur til fyrra kjörtímabils Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, að því er fram kemur í frétt CNN. Þá hóf dómstóllinn rannsókn á meintum stríðsglæpum bandarískra hermanna í Afganistan.
Á yfirstandandi kjörtímabili Trumps hafa bandarísk stjórnvöld beitt embættismenn dómstólsins refsiaðgerðum vegna rannsókna þeirra á aðgerðum Bandaríkjanna og Ísraels.
Bandarísk stjórnvöld hafa nú hleypt af stokkunum herferð sem miðar að því að draga úr umsvifum Alþjóðaglæpadómstólsins á heimsvísu. Þau hafa þrýst á önnur ríki að hafna lögsögu dómstólsins gagnvart bandarískum embættismönnum og hermönnum og hafa boðað frekari refsiaðgerðir.
Þá hafa bandarísk stjórnvöld lýst því yfir að þau vilji að aðildarríki segi sig úr dómstólnum og hætti öllum fjárframlögum til hans. Utanríkisráðherrann hefur jafnframt sagt dómstólinn studdan og rekinn af öflugu neti vinstrisinnaðra frjálsra félagasamtaka, alþjóðasinna og ríkisstjórna þróunarríkja sem sameinast hafi í andstöðu sinni við Bandaríkin.
Omar Shakir, framkvæmdastjóri mannréttindasamtakanna DAWN, hefur hafnað ásökunum Rubios. Hann segir utanríkisráðherrann rangtúlka málflutning félagasamtaka. Með aðgerðum sínum grafi Bandaríkin ekki einungis undan dómstólnum sjálfum heldur einnig reglukerfi alþjóðasamfélagsins sem byggt var upp eftir seinni heimsstyrjöldina.