Þegar þingmaðurinn Snorri Másson lýsti skemmtilegri stemningu á Bergmálstónleikum Kaleo á Þingvöllum í viðtali hjá Stefáni Einari Stefánssyni í Spursmálum vakti ein frásögn hans sérstaka athygli.
Samkvæmt Snorra hafi kynnarnir, Bergur Ebbi Benediktsson og Saga Garðarsdóttir, tekið óformlega „skoðanakönnun“ meðal um 20 þúsund tónleikagesta um afstöðu þeirra til aðildar Íslands að Evrópusambandinu.
„Megum við heyra fagnaðarlæti ef þið segið já?“ á annar kynnanna að hafa spurt. Snorri segir að viðbrögðin hafi verið fremur hófleg.
Þegar spurt hafi verið hvort fólk væri á móti aðild hafi hins vegar „lýðurinn tryllst“, eins og hann orðaði það.
Prófuðu síðan hvalveiðar
Í Spursmálum sagði Snorri að kynnarnir hefðu brugðist við niðurstöðunni með hálfgerðu fáti líkt og þetta hefði nú ekki verið niðurstaðan sem þau voru að vonast eftir og svona eins og til að breyta um umræðuefni hafi þau því stungið upp á að prófa annað hitamál.
„Þá sögðu þau: Eigum við að prófa hvalveiðar? …og þegar spurt var hvort fólk styddi hvalveiðar voru viðbrögðin aftur miklu sterkari.“
Snorri sagði í léttum tón að ef þessi óformlega skoðanakönnun hefði eitthvert forspárgildi fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið þann 29. ágúst hefði hann litlar áhyggjur af niðurstöðunni.
Fór að leita að upptökunni
Nútíminn ákvað að sannreyna frásögn Snorra með því að skoða upptökuna á Sjónvarpi Símans.
Samkvæmt opinberri dagskrá Bergmála átti umrætt atriði sér stað rétt áður en Emilíana Torrini steig á svið. Þegar leitað var að upptökunni kom hins vegar í ljós að einmitt sá hluti dagskrárinnar virtist ekki vera aðgengilegur.
Þáttur númer átta, sem samkvæmt dagskránni hefði átt að innihalda tónleika Emilíönu Torrini og kynninguna á undan, fannst ekki meðal upptakanna.

Engin svör frá Símanum
Nútíminn sendi Sjónvarpi Símans fyrirspurn þar sem óskað var skýringa á því hvers vegna þessi hluti dagskrárinnar væri ekki aðgengilegur og hvort upptakan hefði verið fjarlægð eða ætti eftir að birtast.
Þegar þessi frétt er skrifuð hafa engin svör borist.
Í millitíðinni hafa allir þættir Bergmála verið fjarlægðir af Sjónvarpi Símans. Nútíminn hefur þó upplýsingar um að upphaflega hafi aldrei staðið til að upptökurnar yrðu aðgengilegar þar nema í takmarkaðan tíma. Hvort það skýrir einnig hvers vegna þátturinn með Emilíönu Torrini var ekki aðgengilegur þegar fyrirspurnin var send liggur ekki fyrir.
Þangað til verður því ekki annað sagt en að upptakan sem Snorri vísaði til sé horfin úr almennri sýn og að óljóst sé hvers vegna.
Hér fyrir neðan má sjá viðtalið við Snorra Másson í Spursmálum þar sem hann lýsir þessari óformlegu atkvæðagreiðslu þar sem meirihluti tónleikagesta á Þingvöllum lýsti sig andvígan inngöngu í Evrópusambandið. Snorri segir frá á mínútu 42:00: