Guðrún Ása Björnsdóttir sérfræðilæknir stendur að verkefninu ásamt hópi heilbrigðisstarfsfólks. Hún segir að þörf fyrir heilbrigðisþjónustu fari sívaxandi og við náum ekki að mæta henni nema með fjölbreyttum og nýjum lausnum. Fólksfjölgun og öldrun þjóðarinnar knýja þá þróun áfram og álagið á heilbrigðiskerfið mun aukast meira en flesta órar fyrir.
„Við þekkjum þetta öll á eigin skinni. Foreldrar okkar eru að eldast, börnin okkar meiðast í íþróttum, við veikjumst sjálf og alls staðar er bið.“
Samkomulag hefur verið gert við fasteignafélagið Landsbyggð um langtímaleigu húsnæðisins við Háaleitisbraut. Þar standa nú yfir umfangsmiklar endurbætur. Guðrún segir húsnæðið gefa kost á að móta aðstöðuna að starfseminni og svigrúm til að stækka síðar en starfsemin verður til að byrja með á tveimur hæðum.
Fjölbreytt þjónusta á einum stað
Ein af áherslum Litla spítalans verður að halda utan um fólk með langvinna sjúkdóma. Guðrún nefnir einstakling sem þurfi reglulegt eftirlit, einstaka inngrip, ráðgjöf um lífsstíl og aðkomu fleiri en eins sérfræðings.
„Í dag þarf hann sjálfur að púsla þessu saman á mörgum stöðum. Við viljum að hann fái heildstæða þjónustu á einum stað þar sem gæði og öryggi verða í forgrunni.“
Þar eigi forvarnir, heilsuefling og ráðgjöf um lífsstíl að fara saman við læknisþjónustu. Hún segir að markmiðið sé að sinna verkefnum sem geti átt heima utan Landspítala og heilsugæslunnar og létta þannig á öðrum hlutum heilbrigðiskerfisins.
Aðstandendur verkefnisins stefni að samstarfi bæði við opinbera aðila og einkaaðila. Markmiðið sé að tryggja samfellu í þjónustunni, einnig þegar sjúklingar þurfi frekari meðferð annars staðar.
„Við viljum ekki keppa við kerfið, við viljum létta á því.“
Horfa til Norðurlandanna
Fyrirmyndirnar sækja aðstandendur meðal annars til Norðurlandanna. Guðrún segir opinbera aðila og einkaaðila þar vinna saman innan sama heilbrigðiskerfis. Hún vilji nýta þá reynslu og laga að íslenskum aðstæðum.
Hún segir samstarf milli heilsugæslu, sérhæfðrar þjónustu og sjúkrahúsa vera þróaðra þar, þannig að fólk fái meðferð þar sem hún hentar best hverju sinni.
„Á Íslandi hefur myndast gat á milli heilsugæslu og sjúkrahúsþjónustu sem nágrannaþjóðir okkar hafa að miklu leyti brúað en okkur hefur ekki tekist það almennilega.“
Vilja fá heilbrigðisstarfsfólk heim
Guðrún hefur starfað hjá hinu opinbera, í einkageiranum og í stjórnkerfinu. Hún segir þá reynslu hafa hjálpað sér að móta verkefnið.
Mönnun sé ein stærsta áskorun heilbrigðiskerfisins. Aðstandendur séu þegar byrjaðir að ráða inn starfsfólk og vilji meðal annars fá íslenskt heilbrigðisstarfsfólk heim frá útlöndum.
„Markmið okkar er ekki að ráða starfsfólk frá opinberum stofnunum, heldur að skapa umhverfi sem laðar heilbrigðisstarfsfólk m.a. heim frá útlöndum og annars staðar frá og halda því í faginu.“
Hún segir miklu skipta að fólk sem hafi menntað sig til heilbrigðisstarfa geti og vilji starfa við fagið hér á landi.
Heilbrigðisstarfsfólk verði meirihlutaeigendur
Fjárfestar koma að fjármögnun verkefnisins, sem Guðrún segir umfangsmikið og kostnaðarsamt. Féð fari í aðstöðu, búnað og aðra innviði. Hún lýsir fjárfestunum sem þolinmóðum.
„Endanlegt eignarhald verður þó alltaf í meirihlutaeigu heilbrigðisstarfsfólks og skipulagið tryggir að fagleg sjónarmið ráði för í allri stefnumörkun.“
Guðrún segir einnig stefnt að þátttöku í kennslu, þjálfun heilbrigðisstarfsfólks og rannsóknum í samstarfi við háskóla og aðrar stofnanir.
Nauðsynleg heilbrigðisþjónusta standi öllum til boða
Guðrún segir að erindi hafi verið sent til Sjúkratrygginga Íslands og þreifingar séu í gangi. Ekki liggi enn fyrir hvort eða með hvaða hætti stofnunin muni taka þátt í kostnaði við þjónustuna.
„Við viljum að nauðsynleg heilbrigðisþjónusta standi öllum til boða sem á henni þurfa að halda, óháð efnahag.“
Aðstandendur vilji sækja um greiðsluþátttöku þar sem það eigi við til að jafna aðgengi sjúklinga.