Útlendingastofnun bárust 408 umsóknir um dvalarleyfi á grundvelli náms á þessu ári samanborið við 740 umsóknir í fyrra. „Það er umtalsverð fækkun frá síðasta ári,“ segir í svari stofnunarinnar við fyrirspurn fréttastofu.
Af þeim umsóknum sem hafa borist hafa um 200 þegar verið samþykktar, um 100 synjað og um 100 eru enn í vinnslu.
„Óeðlileg ásókn“ í fyrra
Á tímabilinu mars til ágúst í fyrra bárust 740 umsóknir um fyrstu dvalarleyfi vegna náms. Á sama tímabili 2024 bárust stofnuninni um 530 umsóknir.
Í sumar samþykkti Alþingi að herða skilyrði fyrir dvalarleyfi erlendra námsmanna.
„Tölfræði hefur sýnt óeðlilega ásókn í námsmannaleyfi á stuttum tíma. Þá leiddu niðurstöður starfshóps dómsmálaráðherra sem falið var að yfirfara gildandi reglur og framkvæmd dvalarleyfa í ljós að íslenskt regluverk hefur að ýmsu leyti verið rýmra en regluverk annarra Norðurlanda,“ sagði á vef Stjórnarráðsins eftir að frumvarpið var samþykkt í júní.
Umsóknir sem bárust fyrir frest hafa verið afgreiddar
Frestur til að sækja um dvalarleyfi vegna náms fyrir haustið rann út 1. maí. Umsóknir sem bárust fyrir frestinn með fullnægjandi gögnum hafa verið afgreiddar.
„Þær umsóknir sem enn eru í vinnslu bárust annað hvort eftir 1. maí og/eða hafa þurft frekari skoðunar við vegna ófullnægjandi gagna,“ segir í svari Útlendingastofnunar.
Flestar umsóknir um fyrstu dvalarleyfi á grundvelli náms á þessu ári komu frá ríkisborgurum Bandaríkjanna, Pakistan, Filippseyja og Nígeríu.
Meðalafgreiðslutími samþykktra umsókna um dvalarleyfi fyrir námsmenn er um tveir og hálfur mánuður.