Umferðarslys varð á Suðurlandsvegi austan Sólheimajökulsvegar á sjöunda tímanum í kvöld. Þyrla Landhelgisgæslunnar auk þriggja sjúkrabíla og dælubíls voru kölluð út. Þetta staðfestir Íris Edda Heimisdóttir aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Suðurlandi. Upplýsingar um slys á fólki liggja ekki fyrir.
Á vef Vegagerðarinnar segir að búast má við umferðartöfum eða lokunum á Hringvegi undir Sólheimajökli vegna umferðaróhapps. Búist er við að geta opnað veginn kl. 21:30.
Fréttastofu hefur borist ábending um að bílaröðin nái austur að Pétursey.
Fréttin verður uppfærð.