Lexíur og leikhúsið
Sigríður Jónsdóttir skrifar um Högg eftir James Graham, sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu.
Högg er enskt verðlaunaleikrit eftir James Graham byggt á sjálfsævisögu Jacobs Dunne, Right from Wrong: My Story of Guilt and Redemption. Leikritið, sem frumsýnt var í Þjóðleikhúsinu síðustu helgi, fjallar um ungdómsár Jacobs í ensku verkamannahverfi, hvernig hann leiðist út í smáglæpi sem senda hann til glötunar en að lokum til endurlausnar.
Á síðastliðnum árum hafa verk eftir ákveðna tegund af enskum karlkyns leikskáldum tröllriðið leikhúsinu í Englandi og hérna heima. Þar má telja fyrrnefndan Graham, Mike Bartlett, Duncan Macmillan, Jack Thorne og Robert Icke. Allir eru þeir á svipuðum aldri og afskaplega afkastamiklir. Þegar kemur að leikhúsinu er Icke færastur, sérstaklega þegar kemur að leikgerðum, enda hefur hann einbeitt sér að leikhúsinu en margir á þessum lista hafa leitað til sjónvarpsins og eru betri á þeim vettvangi en á leiksviðinu.
Í bókinni segir Dunne ágætlega frá samfélagi yfirgefnu af yfirvöldum og einstaklingum sem eiga nánast ekki séns …