Landeigendurnir stefndu Fjarðabyggð og kröfðust þess að skaðabótaskylda sveitarfélagsins yrði viðurkennd. Töldu þeir að lög um afréttarmálefni og fjallaskil skikkuðu sveitarfélagið til þess að láta smala ágangsfé af jörðinni þar sem það hefði ratað úr öðru heimalandi.
Héraðsdómur Austurlands sýknaði sveitarfélagið af kröfunni á fimmtudag. Ekki hefði verið sýnt fram á að féð hefði ekki komið úr sameiginlegum bithaga þó að ekkert slíkt svæði væri skilgreint í sveitarfélaginu. Sveitarfélög eru aðeins skyldug til að smala ágangsfé ef það kemur úr öðru heimalandi samkvæmt lögunum.
Þá hefði ekki verið sannreynt hvaðan féð kom. Innviðaráðuneytið úrskurðaði í sumar að Fjarðabyggð hefði brotið stjórnsýslulög þegar það kannaði ekki hvaðan ágangsféð kom áður en það ákvað að aðhafast ekki.
Ívar Ingimarsson, sem á Óseyri ásamt Hrefnu Arnardóttur eiginkonu sinni, segir að ekkert hafi legið fyrir í málinu um hvar sameiginlegir bithagar séu í sveitarfélaginu, aðeins hafi verið gengið út frá því að þeir séu til staðar.
„Þar sem sveitarfélagið þurfti ekki að sýna fram á hvar hinir sameiginlegu bithagar eru má þá túlka dóminn þannig að allt ógirt land á Íslandi sé sameiginlegur bithagi. Þá virðist allt ógirt land á Íslandi hafa verið tekið einhverskonar eignarnámi,“ segir Ívar sem telur líklegt að dómnum verði áfrýjað til Landsréttar.
Notendur og eigendur þurfi að greiða girðingarkostnað
Ekki var girt utan um land Óseyrar. Standi dómurinn spyr Ívar sig hvort að notendur og eigendur sameiginlegs bithaga þurfi ekki að greiða fyrir að girða hann gagnvart heimalandi. Í girðingarlögum sé kveðið á um að þeir skuli greiða áttatíu prósent af kostnaðinum við það. Í mörgum tilfellum geti það kostað tugi milljóna að girða.
„Á mörgum svæðum og sveitum eru nú tugir jarða án sauðfjár en einungis örfáar jarðir með sauðfé. Ef allar þessar jarðir fara fram að að sameiginlegi bithaginn sé girtur frá þeirra landi þá verður þetta ansi mikill kostnaður fyrir notendur þessa „sameiginlega“ bithaga,“ segir hann.
Til þess að hægt sé að beita því úrræði þurfi þó að finna út úr því hvar sameiginlegir bithagar séu og hverjir eigi þar afnotarétt. Ívari finnst ótrúlegt að dómstóllinn hafi látið sinnuleysi sveitarfélagsins um að bregðast við kvörtunum landeigenda og að rannsaka málið bitna á þeim.