Vegfarendur ættu að hafa varann á sér því víða er hálka eða snjóþekja á vegum úti. Einnig er hálka á vissum stöðum á höfuðborgarsvæðinu.
Fram kemur á umferðarvef Vegagerðarinnar að hálka eða hálkublettir séu víða frá Vesturlandi um Norðurland, Austurland og Suðausturland. Snjóþekja er á Dynjandisheiði og Fjarðarheiði.