Norðurhjálp hefur það sem af er þessu ári afhent einstaklingum og fjölskyldum í fjárhagsvanda bónuskort til matarinnkaupa að verðmæti yfir tuttugu milljóna króna. Að auki hefur fjöldi fólks fengið matvæli, húsgögn og fatnað frá samtökunum.
„Fólk hefur einfaldlega minna á milli handanna og það er sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman,“ segir Sæunn Ísfeld Guðmundsdóttir, ein stofnenda Norðurhjálpar.
Samtökin reka nytjamarkað að Óseyri 18 á Akureyri og rennur allur ágóði af sölu þar til hjálparstarfsins.
„Í júní afhentum við bónuskort fyrir um fjórar milljónir króna, sem er hæsta mánaðarlega upphæð frá stofnun Norðurhjálpar og nú í september fyrir sambærilega upphæð,“ segir Sæunn en samtökin voru stofnuð 2023.
Allir sem taka þátt í starfi samtakanna eru í sjálfboðavinnu. Þó sé ýmis kostnaður sem fylgi slíkri starfsemi. Leigja þarf rými fyrir markaðinn og greiða hita, rafmagn og fyrir rekstur bifreiða. Sjö milljónir króna hafa farið í reksturinn það sem af er ári.
„Við myndum auðvitað helst vilja nota hverja einustu krónu í að kaupa fleiri bónuskort og hjálpa fólki. En þetta er kostnaður sem fylgir því að halda starfseminni gangandi,“ segir Sæunn.