Landsréttur staðfesti á föstudag og mánudag þrjá úrskurði Héraðsdóms Reykjaness og einn úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um gæsluvarðhald yfir mönnum sem grunaðir eru um að eiga aðild að stórfelldu fíkniefnasmygli.
Mennirnir tengjast þremur málum sem eru til rannsóknar eða fyrir dómstólum. Þeir hafa allir setið í gæsluvarðhaldi og sitja þar áfram á grundvelli nýuppkveðnu úrskurðanna.
Einn hefur verið ákærður fyrir að skipuleggja í tvígang smygl á fíkniefnum til Íslands. Hann neitar sök. Hann er einn þeirra sem voru handteknir erlendis í umfangsmiklum aðgerðum Europol í fimm löndum. Ellefu voru handteknir á Íslandi og þrettán erlendis. Þessi maður er grunaður um að hafa fylgt fólki í flug sem hafði verið fengið til að flytja fíkniefnin til Íslands.
Annar er grunaður um að eiga þátt í smygli á tæplega 11 kílóum af amfetamíni og nær tveimur kílóum af kókaíni með húsbíl í maí. Hann var á ferð með tveimur öðrum mönnum. Maðurinn kvaðst ekkert hafa vitað um fíkniefnin en hefur sætt gæsluvarðhaldi frá því í maí. Allir þrír hafa verið ákærðir fyrir fíkniefnasmygl og hefur aðalmeðferð þegar farið fram. Dóms er beðið.
Síðustu tveir mennirnir tengjast stórfelldu smygli sem kennt hefur verið við Straumsvík. Þá hafði 106 kílóum af kókaíni verið komið fyrir í sjókistu flutningaskips sem kom frá Brasilíu.
Mennirnir tveir eru grunaðir um að hafa tekið við töskum með 30 kílóum af kókaíni.