Til skoðunar er að koma á siglingum á milli borgarinnar Aberdeen í Skotlandi og Seyðisfjarðar. Sveitarfélagið á í viðræðum við hafnaryfirvöld þar í landi.
„Þetta er nú hugmynd sem er lengi búin að vera fljótandi hér í þessu sveitarfélagi eða alveg síðan ferjan hætti að sigla á sínum tíma. Norræna sigldi einu sinni þannig leið að hún kom við í Skotlandi en það eru orðin ansi mörg ár síðan,“ segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri í Múlaþingi en hún er einnig hafnarstjóri. Haft er eftir Bob Sanguinetti, hafnarstjóra í Aberdeen í fjölmiðlinum AberdeenLive að mikill áhugi sé fyrir siglingum á milli borgarinnar og Seyðisfjarðar.
Sérferja á vegum einkaaðila myndi sigla á milli Seyðisfjarðar og Aberdeen og segir Dagmar að samtöl séu hafin við einkaaðila sem hafi áhuga á því að smíða skip til verksins. Finna þarf út úr ýmsum þáttum áður en verkefnið getur orðið að veruleika en til skoðunar er að ferjan taki bæði farþega og frakt.
„Þetta þarf að vera hvort tveggja til þess að það sé góður rekstrargrundvöllur undir svona ferju,“ segir Dagmar sem tekur fram að líklega séu nokkur ár áður en siglingar geta hafist.