Garpur var skipað þeim hjónum Daða Frey og Árnýju Fjólu en í liði Þróttar mættu þau Hákon Jóhannesson og tónlistarkonan Bríet.
Umræða skapaðist um íþróttahæfileika Daða í byrjun þáttarins og var hann spurður hvort hann hefði nú ekki æft körfubolta, en Daði er vel yfir tveir metrar á hæð.
Daði kannaðist nú við það og var í körfuboltaliði FSU. Svo kom síðar í ljós að hann var rekinn úr liðinu fyrir að detta í það á skólaballi. Hér að neðan má sjá umræðuna um körfuboltaafrek Daða. Hægt er að sjá Kviss þættina alla í heild sinni inni á Sýn+.