Árni rak lengi vel Gallery Port sem lokaði í vor eftir áratug í rekstri. Hann ætlar að fagna þessum nýja kafla með pomp og prakt en vinnustofan er í Hafnarstræti 8 og verður fagnaðurinn laugardaginn 24. október frá klukkan tvö til fimm.
„Ég átti í samtali við Eik fasteignafélag en þeir höfðu verið í sambandi við mig tengdu öðru verkefni. Það leiddi til þess að þeir stungu upp á þessu húsi og ég fór að þreifa fyrir mér af góðu fólki sem væri til í að stökkva á þetta með mér og nú er þetta að verða myndarlegur hópur fólks sem er með starfsemi þarna.
Ásamt vinnustofunni minni er Emmsjé Gauti, raftónlistarkonan Lúpína, The Reykjavík Grapevine eru að koma sér fyrir og okkar besti píanóleikari Magnús Jóhann. Þannig að það er óhætt að segja að það séu áhugaverðir tímar framundan í Hafnarstrætinu,“ segir Árni fullur tilhlökkunar.
Samhliða þessu opna Árni Már og kollegi hans Einar Viðar Thoroddsen Prentstofuna Hafnarstræti, en það er silkiþrykkverkstæði sem þeir kollegar eru í óðaönn að setja upp. Prentstofan mun bæði gefa út prentverk listamanna ásamt þeirra eigin.
Fyrsta útgáfa verður sýnd næsta laugardag og er það myndlistarkonan Shoplifter sem verður með nokkur verk. Ásamt myndlistinni, prentverkunum og góðu fólki næsta laugardag mun Berndsen spila ljúfa tóna og Magnús Jóhann leika nokkur lög.