Þetta segir í ákæru á hendur manninum, sem gefin var út í júlí. Fyrirtaka verður í máli Héraðssaksóknara á hendur honum fyrir Héraðsdómi Suðurlands á morgun.
Í ákærunni er honum gefin að sök nauðgun, kynferðisbrot og stórfellt brot í nánu sambandi, með því að hafa í janúar 2022, á þáverandi heimili sínu og þáverandi sambýliskonu sinnar, haft samræði við konuna án hennar samþykkis þar sem hún lá meðvitundarlaus og þannig notfært sér að hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum svefndrunga og með því að hafa á sama tíma, án samþykkis og vitneskju konunnar tekið upp og þannig útbúið myndskeið af samræðinu.
Með þessari háttsemi sinni hafi maðurinn ógnað lífi, heilsu og velferð konunnar.