Framkvæmdir við dýpkun í Hafnarfjarðarhöfn hafa staðið yfir frá í fyrravetur. Næsta sumar mun ný smábátahöfn líta dagsins ljós og breytir ásýnd hafnarsvæðisins.
Nákvæmar mælingar liggja að baki slíkum verkefnum og áætlað er að um 50 þúsund rúmmetrum af jarðefni hafi verið mokað upp af hafsbotni.
Kjartan Jakob Hauksson hjá Sjótækni stýrir verkinu og er öllum hnútum kunnur.
„Hér er mokað frá morgni til kvölds, sjö daga vikunnar og við mælum reglulega til að fylgjast með árangri. Efnisflutningaskipið Skúmur siglir fulllestað og losar hér utar. Það er heilmikið efni farið því erum við að klára verkið.“
Snæbjörn Þór Ólafsson stýrir efnisflutningaskipinu Skúmi og fer margar losunarferðir á dag. „Þetta er svolítið eins og stærri og þyngri vörubíll. Þetta er heilmikið drullumall.“