Ekkert varð af því en samkvæmt heimildum blaðamanna New York Times hafði forsetinn lagt þetta nokkrum sinnum til á mánuðunum áður en hún lét af störfum þann 27. ágúst.
Eftir að hún fór mun Trump hafa haldið áfram að tala um salinn og að hann vilji láta gera hann aftur að sundlaug.
Franklin D. Roosvelt lét gera þar innanhússsundlaug árið 1939 þar sem hann stundaði hreyfimeðferð vegna mænuveiki. Richard Nixon lét svo byggja yfir sundlaugina og gerði í staðinn sal fyrir blaðamenn. Þeir blaðamenn sem starfa í Hvíta húsinu gera það í litlu skrifstofurými sem er við hlið salsins.
Sundlauginn er enn undir gólfinu.
Trump nefndi fyrst að breyta salnum aftur í sundlaug á sínu fyrsta kjörtímabili.
Þann 27. september deildi hann svo mynd af salnum með textanum: „Falsfréttir“ og „fyrir“ annars vegar. Hins vegar var svo mynd af sundlaug í marmarahvítu herbergi, sem var einnig þakið gulli, með textanum: „FDR sundlaug“ og „eftir“.
Aðrir fjölmiðlar vestanhafs hafa sagt fréttir af því að Trump hafi ítrekað í gegnum árin sagt við ráðgjafa sína að undanförnu að hann vilji losna við blaðamenn úr Hvíta húsinu.
https://www.wsj.com/politics/policy/trump-has-repeatedly-weighed-kicking-press-out-of-white-house-0d0644e8
Hingað til hafa þeir mótmælt þeim hugmyndum eða reynt að leiða þær hjá sér þar til Trump fer að hugsa um eitthvað annað, segir í grein NYT. Nú hefur hins vegar orðið sú breyting á að ráðgjafateymi Trumps hefur orðið fámennara og hann er sagður bálreiður yfir umfjöllun um sig, sem hann telur mjög neikvæða.
Ráðgjafar Trump sem hafa aukin áhrif hjá forsetanum hafa hvatt hann til að finna leiðir til að refsa blaðamönnum.
Í yfirlýsingu til NYT segir Steven Cheung, samskiptastjóri Hvíta hússins, að Bandaríkjamenn treysti falsmiðlum ekki, réttanlega, og að þeir falsi sögur á grunni lyga og heimildarmanna sem viti ekkert í sinn haus.
„Allir valmöguleikar eru til skoðunar og við munum gefa út tilkynningu þegar það er við hæfi.“
Blaðamaður kallaður „mongólíti“
Samband Trumps og fjölmiðla hefur aldrei verið gott. Honum hefur lengi þótt umfjöllun um hann vera óvægin og röng. Hann hefur ítrekað kallað fjölmiðla falsmiðla, reynt að banna tilteknum fjölmiðlum að fjalla um sig og verið harðorður í garð tiltekinna fréttamanna, svo eitthvað sé nefnt.
Sjá einnig: Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki
Einu sinni kallaði hann fréttakonu „svínku“ um borð í forsetaflugvélinni þegar hann var spurður út í Epstein-skjölin.
Á fundi í Hvíta húsinu í gær hellti Trump sér yfir blaðamenn sem voru að spyrja hann spurninga. Hann var sérstaklega harðorður í garð blaðamanns Independent, sagði honum að hafa hljótt, spurði hvort hann væri sjúkur og sagði að eitthvað væri að honum.
😳 Trump loses it and SNAPS at a string of reporters, says Ilhan Omar might "go to jail," calls Somalia "a shit house," and boasts that thanks to a new program he announced today Americans "will make millions of dollars by turning others in" during absolutely deranged Oval Office event Here's a supercut:
— Aaron Rupar (@atrupar) October 20, 2026
Það sem þessi tiltekni blaðamaður gerði af sér var að spyrja Trump út í nýtt átak ríkisstjórnarinnar sem snýst um að verðlauna fólk fyrir að koma upp um spillingu. Þeir sem benda á raunverulega spillingu geta fengið eitt prósent af því sem spillingin hefði kostað ríkið í verðlaun.
Blaðamaðurinn spurði forsetann fyrst út í mjög gömul lög í Bandaríkjunum sem fela í sér að þeir sem koma upp um spillingu fá mun hærri greiðslur en í þessu nýja átaki Trumps. Hann spurði af hverju einhver ætti að nýta sér þetta nýja átak þegar viðkomandi gæti farið hefðbundina leið og fengið mun meira í verðlaun.
Seinna meir spurði hann út í umdeildar breytingar sem Trump ætlar að gera á golfvelli í Washington DC.
Í færslu opinbers reiknings Hvíta hússins á X er þessi blaðamaður kallaður „mongólíti“ og „fáviti“. Slegið er á svipaða strengi á opinberum reikningi JD Vance, varaforseta, þar sem blaðamaðurinn er kallaður fábjáni.
.@POTUS absolutely roasts Mongoloid Moron @AndrewFeinberg for his disgraceful behavior: "What's wrong with you? Are you a sick person? I actually think there's something wrong with you." https://t.co/DyMDGdmBSc
— Rapid Response 47 (@RapidResponse47) October 20, 2026