Toyota Land Cruiser-jeppa var ekið á Helen Haines, óháðan þingmann á ástralska þinginu, í heimabæ hennar Wangaratta á mánudag. Vitni sögðu að ökumaðurinn hefði klemmt Haines á milli bílsins og veggs. Hann hefði svo bakkað og ekið aftur á hana.
Eiginmaður Haines greindi fjölmiðlum frá því í dag að vinstri fótleggur hennar hefði verið fjarlægður strax á mánudag. Læknar á sjúkrahúsi í Melbourne hefðu svo fjarlægt hægri fótinn í dag þegar ljóst varð að honum yrði ekki bjargað.
„Góðu fréttirnar eru að Helen er lifandi og að hún er í stöðugu ástandi. Það er það mikilvægasta fyrir fjölskylduna okkar,“ sagði Phil Haines, eiginmaður hennar, en þau eiga fjörutíu ára brúðkaupsafmæli í næsta mánuði.
Maðurinn sem ók á Haines er á fimmtugsaldri. Hann er sakaður um að hafa ekið viljandi á Haines. AP-fréttastofan segir að hann hafi hvorki sóst eftir lausn gegn tryggingu né tekið afstöðu til sakarefnisins.
Lögregla rannsakar enn hvað manninum gekk til. Lögmaður hans sagði dómara í málinu að hann þjáðist mögulega af geðrænum vandamálum þó að hann hefði aldrei verið greindur með geðsjúkdóm áður.