Mohamed Abdukardir Ali, nýkjörinn þingmaður sænska Vinstriflokksins, fær þingmannsgreiðslur þótt hann hafi enn ekki hafið störf á þinginu. Á sama tíma hefur úttekt Expressen dregið fram áralanga sögu ógreidds meðlags, ógreiddra reikninga og greiðsluloforða sem hann stóð ekki við.
Kosningabarátta Ali er nú til rannsóknar vegna gruns um kosningasvik. Sænska ákæruvaldið staðfesti húsleitir í málinu 20. október.
Fjörutíu skuldaliðir og engar mánaðarlegar greiðslur
Skuldasaga Ali nær langt aftur í tímann, lán, endurkröfur vegna námsaðstoðar, hraðaksturssektir, stöðumælasektir og ferðir án farmiða í almenningssamgöngum.
Blaðið Expressen segir frá endurteknum tilraunum lánadrottna til að í hann og greiðsluáætlunum sem hann fylgdi ekki. Meðal annars var samið um að hann greiddi námsstyrk niður með aðeins 100 sænskum krónum á mánuði. Hann stóð ekki við það.
Þegar Ali fékk greiðsluaðlögun árið 2022 voru skuldaliðirnir 40 og heildarfjárhæðin 163.045 sænskar krónur, samkvæmt gögnum sem sænskir miðlar hafa farið yfir.
Greiðslugeta hans var metin engin og mánaðarleg greiðsla því ákveðin núll krónur. Aðlöguninni á að ljúka í júní 2027.
Þrátt fyrir það hafa nýjar kröfur bæst við. Eftir þingkosningarnar bárust tvær nýjar greiðslukröfur til innheimtu yfirvalda, samtals 24.293 sænskar krónur, vegna ökutækjatrygginga og brottflutnings bifreiðar.
Greiddi ekki einu sinni fyrir ökuprófið
Samkvæmt úttekt Expressen greiddi Ali ekki einu sinni fyrir bóklega ökuprófið né verklega prófið og leigu prófbílsins. Meðlag fór einnig í vanskil og sænska almannatryggingastofnunin leitaði til innheimtuyfirvalda.
Þingmannsgreiðslurnar halda áfram að koma þótt sætið sé autt
Grunngreiðslur sænskra þingmanna nema 81.400 sænskum krónum á mánuði.
Ali óskaði eftir tveggja vikna leyfi eftir að kosningasvikamálið komst í hámæli. Þegar tímabilinu lauk 12. október tilkynnti hann sig veikan.
Andreas Norlén þingforseti hafnaði síðar leyfisbeiðninni. Hann staðfesti þó við TV4 að ekkert yrði dregið frá greiðslum vegna fyrstu tveggja vikna fjarverunnar, þar sem afgreiðsla þingsins sjálfs hefði dregist.
Fyrirtækið fannst ekki í fyrirtækjaskrám
Spurningar hafa einnig vaknað um viðskiptaumsvif Alis. Á LinkedIn kynnti hann sig sem stofnanda og framkvæmdastjóra Verisom, fyrirtækis sem Expressen fann ekki í sænskum, sómölskum eða öðrum alþjóðlegum fyrirtækjaskrám sem blaðið kannaði.
Hann vísaði einnig til þróunarverkefnis fyrir Sómalíu í málarekstri vegna umsóknar um sænskan ríkisborgararétt.
Umsókn hans hafði áður verið hafnað vegna skuldanna. Hann fékk síðan ríkisborgararétt í febrúar á þessu ári.
Skuldirnar verða teknar til endurskoðunar
Nýju þingmannstekjurnar hafa orðið tilefni þriggja beiðna um endurskoðun greiðsluaðlögunarinnar. Innheimtufyrirtækið Sergel hefur óskað eftir að hún verði felld niður og Ali látinn greiða samkvæmt nýjum tekjum.
Ali hefur sagst ætla að greiða skuldirnar eftir þeirri greiðslugetu sem hann hafi nú.
Kosningasvikarannsóknin heldur líka áfram. Við húsleitirnar 20. október lagði lögregla hald á muni sem ákæruvaldið segir geta skipt máli fyrir rannsóknina.
Sænska lögreglan rannsakar sex mál vegna gruns um kosningasvik
Ali hefur hafnað aðild að kosningasvikum. Í frétt TV4 frá 14. október kom fram að honum hefði ekki verið tilkynnt formlega um grun um refsivert brot.