Eigendur íbúða í fjölbýlishúsinu að Jöfursbási 5b, í Gufunesi í Reykjavík, eru verulega ósáttir við byggingu nýs fjölbýlishúss á næstu lóð við þeirra hús, Jöfursbási 3. Segja eigendurnir að þeir hafi ekki átt von á byggingu nýja hússins sem verður um 10-12 metra frá þeirra húsi og tveimur hæðum hærra. Telja eigendurnir að nýja húsið sé ekki í samræmi við deiliskipulag svæðisins. Segja þeir að bygging nýja hússins skerði meðal annars dagsbirtu og útsýni frá þeirra íbúðum og að þetta sé ekki í samræmi við það sem kynnt var þegar þeir keyptu sínar íbúðir.
Íbúðareigendur í Gufunesi verulega ósáttir - Áttu ekki von á nýju húsi svo nálægt sínu