Þórður Snær: stál, byrlun og leki

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Þórður Snær Júlíusson fyrrum ritstjóri Kjarnans/Heimildarinnar var þingmannsefni Samfylkingar við síðustu alþingiskosningar. Hann var í þriðja sæti í Reykjavík-norður þar sem Kristrún formaður var oddviti. Stuttu fyrir kosningar birtu fjölmiðlar bloggfærslur Þórðar Snæs sem hann skrifaði undir dulnefninu þýska stálið. Þar sagði m.a.:
Konur eru […} lævísar, miskunnarlausar, undirförlar tíkur sem svífast einskis til að ná því fram sem þær vilja og helst með því að láta sjálfar sig líta út sem fórnarlömb atburðarásarinnar á meðan.
Þeir sem þekkja til starfa Þórðar Snæs telja að þarna lýsi hann sjálfum sér. Þórður Snær átti aðkomu að byrlunar- og símamálinu. Eftir byrlun lá Páll skipstjóri Steingrímsson í öndunarvél á Landsspítalanum í Fossvogi. Síma skipstjórans var stolið og tækið afritað af blaðamönnum. Þórður Snær, þá ritstjóri Kjarnans, var einn blaðamannanna. Samkvæmt dómi landsréttar standa rök til þess að Þórður Snær hafi átt ,,aðild, beina eða óbeina, að byrlun Páls skipstjóra Steingrímssonar og stuldi á síma hans.“
Þórður Snær fékk stöðu sakbornings lögreglurannsókn á byrlun, stuldi og afritun síma. Ritstjórinn fór óðara í hlutverk fórnarlambsins, líkt og lævísra, miskunnarlausra og undirförulla er háttur – samkvæmt orðum Þórðar Snæs. Hann kvaðst ofsóttur af lögreglu sem væri í ofanálag gerspillt.
Þórður Snær fékk kjör sem þingmaður Samfylkingar. En vegna skrifanna undir dulnefninu þýska stálið gaf hann út yfirlýsingu fyrir kosningarnar að hann myndi ekki taka sæti á alþingi. Lævísa þingmannsefnið gerði baksamning við forystu Samfylkingar um að verða framkvæmdastjóri þingflokksins. Kortéri fyrir kosningar urðu Kristrún og félagar að samþykkja kröfu Þórðar Snæs. Fylgi flokksins var í húfi, hafði fallið um nokkur prósentustig eftir að upp komst um þýska stálið.
Í viðtengdri frétt segir að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd alþingis rannsaki Þórð Snæ vegna trúnaðarbrots, leka á upplýsingum úr stjórnarráðinu um hækkun bankaskatts.
Hvað gera lævísir, miskunnarlausir og undirförulir nú?