Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað víðs vegar um Evrópu á undanförnum dögum. Mótmælin hafa teygt anga sína víða um heimsálfuna en þau beinast flest gegn hækkandi verðlagi og samdrætti í opinberri þjónustu. Í Frakklandi, Ítalíu og Albaníu hafa mótmæli þessi orðið að óeirðum með tilheyrandi skemmdum og handtökum.
Í fréttinni hér fyrir neðan má lesa nánar hvað olli því að mótmælaaldan fór af stað.
Fara ránshendi um göturnar
Í frönskum borgum á borð við París, Marsaille og Lyon hafa óeirðaseggir farið ránshendi um verslanir og kveikt í byggum og bílum. Farið var fram á útgöngubann í kjölfarið og sagði innanríkisráðherra Frakklands að stjórnvöld hefðu misst stjórn á ástandinu í borgunum.
Búið er að boða til mótmæla víða um Evrópu um helgina og hafa bæði frönsk og ítölsk yfirvöld ákveðið að herinn muni aðstoða lögreglu við að koma í veg fyrir að hlutirnir fari úr böndunum. Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, hefur einnig tilkynnt að þeir sem taka þátt í óeirðum fái þyngri dóm en áður og að foreldrar barna sem taka þátt í því að ræna úr verslunum og fremja skemmdarverk verði gerðir fjárhagslega ábyrgir fyrir gjörðunum.
Ungmenni meðal handteknu
Búið er að loka útibúum fjölda tískuverslana í Mílanó af ótta við ástandið og hafa tískuhús á borð við Chanel og Dior fjarlægt allar vörur úr gluggum verslana sinna til að reyna að koma í veg fyrir þjófnað.
„Ríkisstjórnin mun bregðast af festu við þessum árásum á ríkið, meðal annars með aðgerðum sem miða að því að draga úr ofbeldi af hálfu ólögráða ungmenna,“ sagði Antonio Tajani, utanríkisráðherra Ítalíu, á mánudag. 271 var handtekinn í Mílanó síðustu helgi, þar af 23 ungmenni.
Kynni sér kröfur ríkja
Utanríkisráðuneyti Íslands birti í gær færslu á samfélagsmiðlum þar sem fólk var hvatt í ljósi frétta um mótmæli og óeirðir í Evrópu til að kynna sér þær kröfur sem gerðar eru til ferðamanna á sérhverjum áfangastað.
„Hafa ber hugfast að reglur og/eða leiðbeiningar staðaryfirvalda geta breyst hratt. Ferðafólk ber alltaf sjálft ábyrgð á ferðaundirbúningi,“ segir í færslunni.