Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að fundur milli Volodomyr Zelensky Úkraínuforseta og Steve Witkoff, erindreka Bandaríkjastjórnar, í Osló hafi verið jákvæður. Hann bætti við að ekkert óvænt hefði komið fram á fundi þeirra í gær.
Witkoff fundar með Vladimír Pútín Rússlandsforseta í dag. Jared Kushner, tengdasonur Bandaríkjaforseta, sækir einnig þann fund en í gegnum fjarfundabúnað samkvæmt heimildum AFP fréttaveitunnar.
Zelensky fundaði einnig með Alexander Stubb, forseta Finnlands, og Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, í gær. Á blaðamannafundi tilkynnti Zelensky að Starshield, kerfið sem sendir Úkraínuher viðvaranir um yfirvofandi loftárásir Rússa, væri aftur komið í gang.
Kerfið Starshield er gervihnattakerfi sem bandaríski herinn notar til fjarskipta í hernaði og nýtist einnig til loftárása á hernumdum svæðum Rússa í Úkraínu. Starshield byggir á sömu tækni og Starlink sem SpaceX selur og þjónustar á almennum markaði.
Musk sagður hafa hægt á Starshield-kerfinu
The Wall Street Journal greindi frá því í gær að milljarðamæringurinn Elon Musk hefði fyrirskipað að hægt yrði á Starshield-kerfinu, en fyrirtæki hans SpaceX þróaði kerfið.
Rubio sem staddur er á Indlandi sagði að yfirvöldum í Washington hefði ekki verið kunnugt um það fyrirfram að hægt yrði á Starshield-kerfinu. Rubio sagði að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefði ekkert með ákvarðanir að gera sem teknar væru af Starlink, Starshield og af Musk sjálfum.
Musk sagði í færslu á X í síðustu viku að Starshield væri í eign og stjórn bandarísku ríkisstjórnarinnar. Hann sagði að hvers kyns takmörkunum á hraða kerfisins eða notkun þess væri stjórnað af Bandaríkjaher og Bandaríkjaforseta.