Nefndin segir í úrskurði sínum að ekki sé í lögum að finna heimild sem skyldar nefndina til að biðja eiganda bílsins til að biðja leigjandann afsökunar og að hún geti því ekki krafið hann um það.
Úrskurður var kveðinn upp þann 13. október í málinu en nefndinni barst kæra vegna málsins í desember á síðasta ári þar sem maðurinn gerði kröfu um endurgreiðslu leiguverðs að fjárhæð 69.352 krónur, greiðslu útlagðs lækniskostnaðar og 300.000 krónur í miskabætur, auk formlegrar afsökunarbeiðni frá eiganda bílsins sem hann leigði.
Fram kemur í úrskurði að framlögð gögn í málinu séu, auk kvörtunar, andsvara og athugasemda, myndir, tölvupóstsamskipti, reikningar, sjúkraskrár og leigusamningur aðila en leigan sjálf átti sér stað frá 27. febrúar til 4. mars 2025.
Á síðasta degi leigunnar sagðist maðurinn hafa orðið fyrir alvarlegum meiðslum af völdum saumnálar sem falin var í bifreiðinni. Nálin hafi verið undir armpúðanum milli framsætanna, beint fyrir aftan handbremsu bifreiðarinnar. Þegar hann dró handbremsuna upp hafi nálin stungist í lófa hans með þeim afleiðingum að það blæddi úr lófanum og hann fann fyrir miklum sársauka.
Tilkynnti meiðslin og fór til læknis samdægurs
Hann segir nálina ekki hafa verið sýnilega og telur að „af henni hafi því stafað dulin hætta við notkun bifreiðarinnar“. Maðurinn tilkynnti bílaleigunni um atvikið samdægurs og leitaði sér læknisaðstoðar. Þar var maðurinn skimaður fyrir smitsjúkdómum og ráðlagt að endurtaka sýnatöku eftir þrjá mánuði og mögulega aftur eftir sex mánuði. Þar sem um saumnál hafi verið að ræða hafi smithætta því talin ólíkleg og því ekki talin þörf á fyrirbyggjandi meðferð. Röntgenmynd sýndi enga aðskotahluti í sárinu og ekki var talin þörf á frekari rannsóknum eða meðferð og var maðurinn að því loknu útskrifaður.
Eftir að hann kom heim fór hann samkvæmt úrskurði í frekari læknisskoðanir vegna mögulegrar smithættu en niðurstöður á mögulegu smiti hafa verið neikvæðar.
Í úrskurði kemur fram að maðurinn telji að bílaleigusalinn hafi ekki með fullnægjandi hætti tryggt að bíllinn væri öruggur til notkunar og beri því ábyrgð á tjóni hans. Þá telur hann einnig að ekki hafi verið nægilega vel rannsakað hvernig nálin komst í bílinn.
Bílaleigusalinn hafnaði kröfum mannsins og sagðist ekkert vita um atvikið eða hvernig nálin komst í bílinn og benti í svörum sínum á að engir sambærilegir hlutir væru notaðir í starfsemi hans eða í þjónustu bílanna. Eftirgrennslan hafi jafnframt ekki leitt í ljós neinar vísbendingar um uppruna nálarinnar.
Ekki hafi verið um alvarleg meiðsl að ræða
Bílaleigusalinn bendir jafnframt á í sínum svörum að gögn mannsins sýni ekki fram á að rekja megi meiðsli mannsins til vanrækslu hans eða háttsemi og að læknisgögn beri ekki með sér að um alvarleg eða varanleg meiðsli hafi verið að ræða og hafnar því kröfum hans.
Í niðurstöðu kærunefndarinnar segir að gögn staðfesti að nálin hafi verið í bílnum þegar maðurinn stakk sig en það liggi ekki fyrir hvernig eða hvenær hún komst þangað. Ekki hafi verið sýnt fram á að bílaleigusalanum hafi verið kunnugt um hana áður en hann afhenti manninum bílinn. Bílarnir séu þrifnir og yfirfarnir við hverja útleigu og þó svo að bílaleigusalanum beri að gæta þess að bílarnir sem hann leigir út séu í góðu og öruggu ástandi verði sú skylda ekki talin fela í sér ábyrgð á sérhverjum aðskotahlut sem kann að finnast í bifreið á hans vegum.
Til þess að skaðabótaábyrgð verði lögð á hann verði að vera sýnt fram á að tjónið verði rakið til saknæmrar háttsemi eða vanrækslu af hálfu varnaraðila.
Að mati nefndarinnar hafi ekki í gögnum málsins verið sýnt fram á að tilvist nálarinnar verði rakin til athafna eða athafnaleysis varnaraðila, svo sem vanrækslu við þrif eða eftirlit með bifreiðinni. Þótt gögnin styðji það að maðurinn hafi orðið fyrir stunguáverka hafi ekki verið sýnt fram á saknæma háttsemi eða vanrækslu af hálfu bílaleigusalans. Því hafnar nefndin kröfu hans um endurgreiðslu leiguverðs, greiðslu lækniskostnaðar og miskabóta.
Ekki hlutverk nefndar að leysa úr ágreiningi
Hvað varðar kröfu sóknaraðila um að varnaraðili biðjist formlega afsökunar er tekið fram að hlutverk kærunefndarinnar sé að leysa úr einstökum ágreiningsmálum sem rísi af sölu- eða þjónustusamningi og að í lögum sé ekki að finna heimild fyrir nefndina til að skylda varnaraðila til að biðjast afsökunar og því sé sú krafa ekki tekin til efnislegrar úrlausnar.