Íbúar í Norðurmýri urðu varir við smyril í hverfinu í morgun. Ýr Jóhannsdóttir gekk fram á fuglinn á horni Gunnarsbrautar og Flókagötu á leið sinni til vinnu í morgun. „Ég hef aldrei séð svona fugl í hverfinu,“ segir hún.
Fuglinn var, líkt og myndirnar sýna, nokkuð gæfur og ekki mótfallinn því að vera myndaður.
Smyrill er algengasti íslenski ránfuglinn og svipar til fálka.
Ólafur K. Nielsen fuglafræðingur segir að smyrlar séu nokkuð tíðir gestir í Reykjavík yfir veturinn. Hann segir ekki óvenjulegt að þeir komi nálægt fólki. „Þeir eru tiltölulega spakir í bænum,“ segir hann.
Hluti stofnsins heldur til á Íslandi yfir veturinn og þessi fugl er sennilega einn þeirra.