Þeim sem voru án atvinnu fækkaði milli mánaða en í ágúst mældist atvinnuleysi 6,8 prósent. Árstíðarleiðrétt atvinnuleysi dróst saman um 1,1 prósentustig á milli mánaða auk þess sem hlutfall starfandi hækkaði um 1,2 prósentustig.
Hlutfall starfandi í september á aldrinum sextán til 74 ára var 75 prósent og atvinnuþátttaka mældist 79,6 prósent.
Þegar litið er til niðurstaðna sem ekki eru leiðréttar eftir árstíðum mældist atvinnuleysi 5,1 prósent og reyndust tæplega tólf þúsund vera án atvinnu. Miðað við sama mánuð árið 2025 jókst atvinnuleysi um 1,9 prósentustig, hlutfall starfandi lækkaði um þrjú prósentustig og atvinnuþátttaka minnkaði um 1,4 prósentustig.
Vinnumálastofnun bárust sex tilkynningar um hópuppsagnir í september þar sem 181 starfsmanni var sagt upp störfum.