Stjörnu­leikur Góa og Unnar bjargar Höggi - Vísir

Stjörnu­leikur Góa og Unnar bjargar Höggi - Vísir

Stjörnu­leikur Góa og Unnar bjargar Höggi - Vísir

Högg – Þjóðleikhúsið. Frumsýning 16. október 2026

Höfundur: James Graham byggt á bók Jacob Dunne. Leikstjóri: Magnús Geir Þórðarson. Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir. Búningar: Filippía I. Elísdóttir Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson: Jakob van Oosterhout, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson o.fl.

Blákaldur veruleikinn

Áhorfendur eru meðvitaðir um söguþráð verksins áður en sýningin hefst. Minningarskjöldur um James Hodgkinson (fórnarlamb Jacobs) tekur á móti manni í anddyrri Þjóðleikhússins og ég verð að gefa leikhúsinu hrós fyrir umgjörð sýningarinnar – hún er til fyrirmyndar.

Fyrri hluti sýningarinnar lýsir bæði æsku Jacobs Dunne og aðdraganda þess að hann verður James að bana. Hann elst upp hjá einstæðri móður í verkamannahverfi í Nottingham og kemur fljótt í ljós að hann passar illa inn í þröngan ramma skólakerfisins. Greining um ADHD og einhverfuróf fylgir bæði ávísun frá félagsþjónustunni en færir einnig móður hans afsökun fyrir þeim árekstrum sem Jacob á við umhverfi sitt.

Leikritið Högg fjallar um hinn nítján ára Jacob sem fer að skemmta sér og kýlir í ölæði mann til bana.Þjóðleikhúsið/Jorri

Líf Jacobs tekur svo breytingu til hins verra þegar hann kynnist vímuefnum og áfengi. Hann kemst í kast við lögin og allt snýst um að vinna sig upp í áliti hjá gengjum hverfisins. Kvöldinu örlagaríka, sem verkið hverfist um, er gert góð skil fyrir hlé. Jacob hefur oft lent í slagsmálum og þurft að verja hendur sínar en er samt ekki týpan sem er sérstaklega að leita uppi ofbeldi. Hann vill til dæmis ekki bera hníf eins og aðrir í genginu. Öll hans plön, draumar og áform breytast þegar hann kemur að vinahóp sínum í rifrildi við ungan mann á torginu. Hann sveiflar hnefanum og þetta eina högg er nóg.

Jacob er morðingi.

Hefur líka gerst á Íslandi

Þrátt fyrir að verkið gerist á Bretlandi er sagan okkur á Íslandi ekki óviðkomandi. Það hafa komið upp sambærileg mál hér á landi. Ég man eftir tveimur atvikum frá því ég var í blaðamennsku á árunum 2004 – 2005. 

Scott McKenna drap Danann Flemming Tolstrup.

Í öðru þeirra varð skoskur knattspyrnumaður sem spilaði hér á landi dönskum hermanni að bana á krá í Keflavík með einu höggi. Hitt málið kom upp á veitingastað í Mosfellsbæ þar sem ungur Íslendingur varð fjölskylduföður að bana með hnefahöggi.

Hugur manns leitar einnig til sorglegra atvika í umferðinni þar sem annaðhvort ölvun eða glannaskapur hefur leitt til dauða fólks í blóma lífsins. Oftar en ekki eru þeir sem bera ábyrgðina í þessum málum ungir karlmenn – markmið þeirra er ekki að drepa eða valda skaða en afleiðingar eru gríðarlegar og fjölskyldur skildar eftir í sárum.

Loftur Jens Magnússon varð Ragnari Björnssyni að bana.

Mér finnst einna áhugaverðast við Högg í Þjóðleikhúsinu að hér er kastljósinu beint að ungum karlmönnum. Þetta er sá hópur sem er einna fyrirferðarmestur í meðferðarkerfinu, fjölmennastur í fangelsiskerfinu og í hvað verstri stöðu í skólakerfinu. Það hefur líka verið í fréttum að ungir karlmenn eru sífellt stærri hluti þeirra sem þarf á úrræðum eins og Virk að halda og félagslegum bótum.

En það er sjaldgæfara að þessum hópi sé gefin rödd eða kastljósinu beint að þeirra vandamálum og líðan og því er samfélagslegt mikilvægi verksins mikið.

Næstum því einleikur

Í Höggi er það Jacob (Jakob van Oosterhout) sem segir okkur söguna. Fyrir hlé er sýningin hálfgerður einleikur þar sem hann er í forgrunni en svo birtast okkur aðrar persónur eins og skissur í stuttum senum. Ég hef aldrei verið neitt sérstaklega hrifinn af því þegar það er sögumaður í leikritum; finnst það frekar gamaldags frásagnaraðferð og stundum svolítið auðveld undankomuleið. Það er erfiðara að láta sögur gerast í gegnum samtöl og sviðsetningu; frekar í barnasýningum eða ævintýrum sem maður sættir sig við sögumann á sviðinu.

Eftir hlé breytist stíll verksins, áherslan verður á eftirleikinn. Persónum fækkar og þá fannst mér leikritið verða betra. Jakob hefur sýnt að hann getur valdið stórum hlutverkum (til dæmis í Ormstungu) og hann stendur sig vel í þessari uppsetningu – dettur ekki í klisjur, heldur uppi réttu orkustigi og leyfir okkur áhorfendum að kynnast aðalpersónunni og mynda okkur á henni skoðun.

Stíllinn á verkinu er ekki auðveldur fyrir leikarana. Það er lítill aðdragandi að dramatískum senum – eitt augnablik erum við stödd á torginu og í næstu andrá á spítalanum þar sem foreldrar James þurfa að horfast í augu við raunveruleikann. Í verki sem er svona brotakennt voru sumar senur betri en aðrar.

Mér fannst Kristinn Óli Haraldsson gera vel í hlutverk Raf sem fer gegn óskráðum lögmálum hverfisins og kjaftar í lögguna, Sigurbjartur Sturla Atlason fékk ekki mikinn tíma til að gera samkynhneigðum bróður Jacobs skil og sú sena virkaði fremur klaufaleg, Þuríður Blær Jóhannsdóttir leikur ýmis hlutverk, t.d. gamla konu en með svona marga leikara í sýningu hlýtur að vera hægt að finna leikkonu á réttum aldri í hlutverk eldri konu í Þjóðleikhúsinu í staðinn fyrir að setja Þuríði í hallærislegt gervi og láta hana ganga við staf.

Gói og Unnur með stórleik

Af leikhópnum fannst mér Guðjón Davíð Karlsson (Gói) og Unnur Ösp Stefánsdóttur í hlutverki foreldranna James og Joan standa upp úr. Það vita allir að Gói getur neglt grínið og glensið en hér sýnir hann alvöru leik í dramatísku hlutverki. Augnablikið þegar hann er að gera upp við sig hvort hann vilji taka í hönd brotamannsins, höndina sem varð syni hans að bana, var virkilega sterkt. Og þegar hann reynir að þurrka bleytu af gólfinu á sáttafundinum fékk ég sting í hjartað.

Samleikur Guðjóns og Unnar var til fyrirmyndar og þeirra senur þær sterkustu í verkinu. Unnur bjó til trúverðuga mynd af konu sem þarf að takast á við mikla sorg en hlustar einnig á hjartað og neitar að láta reiðina og hefndina sigra. Í raun er það Joan og hugrekki hennar í að rétta út höndina til Jacobs ástæða þess að þetta leikrit er yfir höfuð til.

Af hverju stóra sviðið?

Högg er svolítið erfið sýning að gagnrýna. Mér finnst efni hennar brýnt og Þjóðleikhúið er svo sannarlega að bjóða upp á spennandi samtal við áhorfendur og þá sér í lagi ungt fólk. En ef ég horfi einungis á uppsetninguna sjálfa þá fannst mér ekki allt jafn vel heppnað. Leikritið verður ansi langdregið á köflum. Þrátt fyrir sterkari leiksenur eftir hlé kemur smá predikunartónn í sýningunni sem ég get alveg trúað að fari í taugarnar á sumum. Sena þar sem Jacob og Joan mæta í sjónvarpsviðtal var mögulega ofaukið og það hefði alveg mátt stytta verkið án þess að það kæmi niður á innihaldinu.

Sviðsmynd Ilmar Stefánsdóttur heillaði mig ekki. Mér fannst eins og hægt hefði verið að nýta möguleika stóra sviðsins mun betur; til dæmis býður hringsviðið upp á spennandi lausnir í leikriti sem gengur út á hraðar senuskiptingur þar sem flakkað er um í tíma og rúmi. Þegar maður skoðar myndir af uppsetningu verksins í Bretlandi og Bandaríkjunum sér maður að sviðsmyndin er í grundvallaratriðum eins og í uppsetningunum úti svo kannski hafa hendur Ilmar verið bundnar af einhverju leiti.

Jakob van Oosterhout fer með hlutverk Jacobs og Edda Margrét með hlutverk móður hans.Þjóðleikhúsið/Jorri

Það sem truflaði mig við leikstjórn Magnúsar Geirs Þórðarsonar var einhver skortur á hörku og ljótleika. Verkið á að gerast í fátæktarhverfi í Nottingham en mér stundum eins og ég væri staddur á söngleik í menntaskóla. Slow-motion dansar í strobe ljósum eru frekar gamaldags stílbragð og hópsenurnar urðu stundum líkastar söngleikjanúmerum. Það bætti ekki úr skák að lýsing Björns Bergsteins Guðmundssonar hefði hentað betur á aldamótatónleikum í Hörpu en á stóra sviði Þjóðleikhússins.

Mig vantaði líka sterkari hugrenningartengsl við Bretland og breska menningu. Búningar Filippíu Elísdóttur voru svolítið sviplausir og kannski hefði þurft að ýkja sumt fyrir íslenska áhorfendur. Þetta átti í raun við verkið í heild – mér fannst erfitt að staðsetja mig, það var einna helst að það næðist í gegnum leiktextann en í einni senu ræða persónurnar um Ólympíuleikana í London.

Svo var það þýðing Kristjáns Þórðar Hrafnssonar sem var eiginlega of góð. Eflaust er aldrei hægt að yfirfæra talsmáta Breta yfir á Ísland. Þar hefur hver stétt sitt tungutak og slangur á meðan íslenskan er einsleitari. En texti Kristjáns var ansi bókmenntalegur og mér varð hugsað til sýningarinnar Ífígeníu í Ásbrú sem var að mínu mati mun breskari þrátt fyrir að vera staðfærð til Íslands. Í henni keypti maður strax týpuna, stéttarstöðu hennar og menntunarleysi - í gegnum talsmátann og búninginn.

Hver er ábyrgur?

Ábyrgð er flókið hugtak og oft eiga börn erfitt að skilja að sami einstaklingur getur bæði borið ábyrgð og verið fórnarlamb á sama tíma. Í Höggi eru ýmsir dregnir fram til ábyrgðar – skólinn sem veit ekki hvað það á gera við Jacob, félagslega kerfið sem þvær hendur sínar með bótagreiðslum og dómskerfi sem sendir Jacob til enn harðari glæpamanna og svo á götuna að vistinni lokinni.

En að lokum er það auðvitað Jacob sjálfur sem ber ábyrgð á eigin gjörðum og eigin lífi. Hann veit að honum verður aldrei fyrirgefið en með því að segja þessa sögu og lifa lífi sínu til góðs er dauði James Hodgkinson að minnsta kosti ekki til einskis.

Niðurstaða

Högg er leikrit sem er gott að foreldrar fari með unglinga sína á. Verkið hvetur til umræðu og vangaveltna og erindið brýnt. En það hefði mátt stytta verkið og aðlaga betur að stóra sviðinu. Jakob stendur sig vel í aðalhlutverkinu og Gói og Unnur Ösp eiga stórleik

#bjargar #góa #höggi #stjörnuleikur #unnar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262951125d/stjornu-leikur-goa-og-unnar-bjargar-hoggi

📰 Aðrar fréttir

Guðmundur Ingi greindist nýlega með krabbamein – „Ég var heppinn“
📅 22.10.2026 👁️ 1
Guðmundur Ingi greindist nýlega með krabbamein – „Ég var heppinn“
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi ráðherra og nú þingmaður utan flokka, greindi frá því í ræðustól Alþingis í gær að hann hefði nýlega greinst m...
Mætti í krabbameinsskimun en var send heim óskoðuð
📅 22.10.2026 👁️ 1
Mætti í krabbameinsskimun en var send heim óskoðuð
Konur á aldrinum 23-64 ára fá boð í leghálsskimun með reglubundnum hætti. Konur sem fara reglulega í skimun fyrir leghálskrabbameini eru í minni hættu...
Ung kona leitar að smakki af bláum ópal: „Kv ein sem fæddist ekki á 19 öld og fékk aldrei að upplifa bláan opal“
📅 22.10.2026 👁️ 1
Ung kona leitar að smakki af bláum ópal: „Kv ein sem fæddist ekki á 19 öld og fékk aldrei að upplifa bláan opal“
Margir sem komnir eru á miðjan aldur og yfir muna eftir bláum Ópal. Í september árið 2005 tilkynnti Nói Siríus að framleiðslu hans yrði hætt. Skýringi...
Vantar sex milljónir til að halda Edduna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
Vantar sex milljónir til að halda Edduna - Vísir
Þetta kemur fram í nýrri styrkumsókn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, ÍKSA, til fjárlaganefndar. Akademían segir hækkandi kostnað og minn...
Guð­mundur Ingi lét fjar­lægja blett af fætinum - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
Guð­mundur Ingi lét fjar­lægja blett af fætinum - Vísir
Guðmundur greindi frá málinu í ræðustól Alþingis í gær. Ræðuna hélt hann í tilefni af bleika deginum sem fór fram í gær. Hann segir mikilvægt að samfé...
Flothringur af sjókví slitnaði frá og fór aftur að reka um Patreksfjörð
📅 22.10.2026 👁️ 1
Flothringur af sjókví slitnaði frá og fór aftur að reka um Patreksfjörð
Eins og greint hefur verið frá í fréttum RÚV strandaði flothringur af sjókví í Patreksfirði um miðjan september. Illa gekk að sækja hringinn sem barði...
After the Show: Low-key evening ideas for Tenerife
📅 22.10.2026 👁️ 1
After the Show: Low-key evening ideas for Tenerife
A big show, concert or comedy night can leave you feeling pleasantly full of noise, colour and conversation, but not quite ready to call it a night. T...
Harka lögreglu í garð mótmælenda kom á óvart
📅 22.10.2026 👁️ 1
Harka lögreglu í garð mótmælenda kom á óvart
Íslenskur kona sem hefur búið í Frakklandi í nær 20 ár segir ekki hafa komið á óvart þegar mótmælin, sem hafa verið í landinu síðustu vikur, hófust. H...
Kveður Víet­nam og heldur á­fram til Kína - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
Kveður Víet­nam og heldur á­fram til Kína - Vísir
„Góð tíðindi fyrir íslenskt atvinnulíf frá Víetnam,“ segir Þorgerður Katrín sem hélt utan um síðustu helgi ásamt meðal annars Ingileif Friðriksdóttur ...
Two named storms in two days as Austen and Boelo target UK
📅 22.10.2026 👁️ 1
Two named storms in two days as Austen and Boelo target UK
The Met Office have named a new storm, Boelo, which is set to bring another round of stormy weather to the UK over the weekend.
Seðla­bankinn lagði Þor­stein Má - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Seðla­bankinn lagði Þor­stein Má - Vísir
Dómur þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun og Morgunblaðið greinir frá niðurstöðunni. Málið varðaði upplýsingar sem var að fin...
Segir suma fjölmiðla frekar vilja hafa vit fyrir fólki en að upplýsa það
📅 22.10.2026 👁️ 2
Segir suma fjölmiðla frekar vilja hafa vit fyrir fólki en að upplýsa það
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gagnrýnir harðlega fréttaflutning RÚV og fleiri fjölmiðla af óeirðunum í Frakklandi. Hann sakar s...
Inga Sæland sendir skýr skilaboð: „Það mun ekki frestast og nei, ég mun alls ekki hætta við þetta“
📅 22.10.2026 👁️ 2
Inga Sæland sendir skýr skilaboð: „Það mun ekki frestast og nei, ég mun alls ekki hætta við þetta“
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, lætur neikvæðar umsagnir skólasamfélagsins um innleiðingu nýs einkunnakvarða í grunnskólum ekkert á sig fá....
Kári segir óttastjórnun í gangi á vinnustaðnum: „Fólk er að leita sér að annarri vinnu“
📅 22.10.2026 👁️ 2
Kári segir óttastjórnun í gangi á vinnustaðnum: „Fólk er að leita sér að annarri vinnu“
„Uppsagnarhrinunni er ekki lokið,“ segir Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hann ræddi um uppsagnir s...
Seðlabankinn sýknaður af bótakröfu Þorsteins Más
📅 22.10.2026 👁️ 2
Seðlabankinn sýknaður af bótakröfu Þorsteins Más
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Seðlabankanum í vil í miskabótamáli sem Þorsteinn Már Baldvinsson höfðaði gegn bankanum.Dómurinn var kveðinn upp í morgu...
Married at First Sight Australia: Police investigate show after 'inappropriate' allegations
📅 22.10.2026 👁️ 1
Married at First Sight Australia: Police investigate show after 'inappropriate' allegations
New South Wales Police say inquiries took place "following a report of inappropriate content being shared".
Uppgötvuðu augnalausan snigil
📅 22.10.2026 👁️ 2
Uppgötvuðu augnalausan snigil
Vísindamenn hafa uppgötvað áður óþekkta tegund ferskvatnssnigils í helli í Kína.Snigillinn, sem hefur fengið fræðiheitið Erhaia dijiang, hefur aðlagas...
Fólk upp­lifi óttastjórnun hjá Reykja­víkur­borg - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Fólk upp­lifi óttastjórnun hjá Reykja­víkur­borg - Vísir
Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, var í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þangað var hann mættur til að ræða hagræðingu í Reykjavík, sem bróðir hans Róbe...
BioWare: Mass Effect and Dragon Age video game studio to close
📅 22.10.2026 👁️ 2
BioWare: Mass Effect and Dragon Age video game studio to close
The influential studio that made Mass Effect and Dragon Age announces it is closing its doors.
Líklegast að það komi ekkert áþreifanlegt úr þessu
📅 22.10.2026 👁️ 2
Líklegast að það komi ekkert áþreifanlegt úr þessu
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir að setja verði mikinn fyrirvara við yfirlýsingar Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að stríðslok í Úk...
Vilja meta áhrif gervigreindar á rekstur borgarinnar
📅 22.10.2026 👁️ 2
Vilja meta áhrif gervigreindar á rekstur borgarinnar
Borgarstjórn samþykkti á þriðjudag að vísa til borgarráðs tillögu Samfylkingarinnar um að vinna heildstæða úttekt á mögulegum áhrifum af notkun gervig...
Útför Matthew Perry lýst í nýrri heimildarmynd - Systir hans segir af hverju hún skellihló
📅 22.10.2026 👁️ 2
Útför Matthew Perry lýst í nýrri heimildarmynd - Systir hans segir af hverju hún skellihló
Systir Matthew Perry greinir frá nýjum, hjartnæmum upplýsingum um einkajarðarför hans.Mary Robertson, leikstjóri Netflix-heimildarmyndarinnar The One ...
Marta María fékk óvæntar ábendingar eftir skrif um sundferð þingmanna
📅 22.10.2026 👁️ 2
Marta María fékk óvæntar ábendingar eftir skrif um sundferð þingmanna
Marta María Winkel, umsjónarmaður Smartlands, segir að eftir skrif hennar um sundferð þingmannanna fimm í Selárlaug nýverið hafi tölvupóstum rignt yfi...
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Viðbrögð Elliða vekja athygli
📅 22.10.2026 👁️ 2
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Viðbrögð Elliða vekja athygli
Jasmina Vajzovic, fyrrverandi varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hefur birt skjáskot af fjölmörgum ummælum sem henni hafa borist á Facebook eftir að hún...
Aurora Abalone lýkur 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu
📅 22.10.2026 👁️ 2
Aurora Abalone lýkur 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu
Félagið Aurora Abalone (Sæbýli hf.) hefur lokið 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu til uppbyggingar 100 tonna árlegrar framleiðslu.Í fréttatilkynni...
„Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
„Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ - Vísir
Hin breska Dench er orðin 91 árs gömul og er ein dáðasta leikkona Bretlands, ef ekki heimsins. Hún hóf leikferilinn á sviði en færði sig svo yfir í kv...
Hvetur stór og smá fyrirtæki til að uppfæra vefi sína
📅 22.10.2026 👁️ 3
Hvetur stór og smá fyrirtæki til að uppfæra vefi sína
Hættuástand vegna öryggisgalla í PHP-forritunarmálinu er ekki yfirstaðið að mati sérfræðings hjá CERT-IS, netöryggissveit íslenskra stjórnvalda. Bjark...
Barclays cutting 5,000 jobs as it increases reliance on AI
📅 22.10.2026 👁️ 2
Barclays cutting 5,000 jobs as it increases reliance on AI
The bank says it is using more AI leading to a 5% reduction in its workforce.
Glaum­gosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Glaum­gosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns - Vísir
Prígósjín-veldið hefur minnkað nokkuð, þar sem stór hluti þess hefur endað í höndum varnarmálaráðuneytis Rússlands en Pavel er enn mjög umsvifamikill ...
Ókunnugur maður sagður hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ókunnugur maður sagður hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um einstakling í bifreið sem sagður var hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla. Lögreglumenn fór...
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Elliði stígur inn í umræðuna
📅 22.10.2026 👁️ 3
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Elliði stígur inn í umræðuna
Jasmina Vajzovic, fyrrverandi varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hefur birt skjáskot af fjölmörgum ummælum sem henni hafa borist á Facebook eftir að hún...
Ástleysið er sárt
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ástleysið er sárt
Ástleysið er sárt Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og...
Geta nú lokað Reykja­nes­brautinni með fjar­stýringu - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Geta nú lokað Reykja­nes­brautinni með fjar­stýringu - Vísir
Frá þessu segir á vef Vegagerðarinnar. Þar kemur fram að ekki þurfi þá lengur að senda lögreglu, björgunarsveitir eða starfsfólk Vegagerðarinnar á sta...
Ótti við ras­ista­stimpil megi ekki stöðva alla um­ræðu - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ótti við ras­ista­stimpil megi ekki stöðva alla um­ræðu - Vísir
Síðustu daga komst Elliði í hann krappan á samfélagsmiðlum þegar hann birti mynd af mönnum sem hann tengdi við óeirðaöldu sem gengur nú yfir Frakkland...
Fasteignamarkaðurinn ekki daufari í 12 ár
📅 22.10.2026 👁️ 3
Fasteignamarkaðurinn ekki daufari í 12 ár
Hvorki kaupverð né leiguverð íbúðarhúsnæðis heldur í við verðbólgu, samkvæmt nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar. Fastei...
Rússar jákvæðir fyrir þríhliða viðræðum við Úkraínu
📅 22.10.2026 👁️ 3
Rússar jákvæðir fyrir þríhliða viðræðum við Úkraínu
Steve Witkoff erindreki Bandaríkjastjórnar og Vladimír Pútín Rússlandsforseti funduðu í Sankti Pétursborg í Rússlandi í gær. Þetta var níundi fundur þ...
Court halts eviction of 70-year-old cancer patient in south Tenerife
📅 22.10.2026 👁️ 3
Court halts eviction of 70-year-old cancer patient in south Tenerife
A court has stopped the eviction of a 70-year-old man with cancer in Guaza, in the south Tenerife municipality, a day before it was due to take place....
Slydda eða snjókoma norðvestan til
📅 22.10.2026 👁️ 3
Slydda eða snjókoma norðvestan til
Íbúar á norðvesturhorninu geta búist við dálítilli slyddu eða snjókomu í dag og víðar á landinu er útlit fyrir skúrir eða slydduél. Norðantil verður þ...
Geymir þú brauðið á þessum stað? Þá ættirðu að hugsa þig tvisvar um
📅 22.10.2026 👁️ 3
Geymir þú brauðið á þessum stað? Þá ættirðu að hugsa þig tvisvar um
Hvar er best að geyma brauð svo það haldist ferskt sem lengst? Í ísskápnum, plastpoka eða brauðkassa? Bakarar segja að margir geri mistök þegar kemur ...
Ekki er kálið sopið... Hvað gerist ef Demókratar taka báðar þingdeildir?
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ekki er kálið sopið... Hvað gerist ef Demókratar taka báðar þingdeildir?
Allt útlit er fyrir að Demókratar nái stjórn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í kosningunum sem fara fram þar í landi þann 3. nóvember. Allar kannanir ...
Ó­leyst ís­lensk ráð­gáta: Veist þú svarið? - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ó­leyst ís­lensk ráð­gáta: Veist þú svarið? - Vísir
Á sama tíma og fornleifafræðingar koma að tómum kofanum standa stærðfræðingar frammi fyrir gagnstæðum vanda. Fyrr í mánuðinum birti gervigreindarfyrir...
Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður - Vísir
Fjölmiðlar, fjölmiðlanefnd og hlaðvörp hafa verið töluvert í umræðunni. Undir Loga Einarssyni eru reyndar fjölmörg önnur mál, svo sem háskólar, nýsköp...
Three pupils hospitalised in viral meningitis outbreak in El Hierro
📅 22.10.2026 👁️ 3
Three pupils hospitalised in viral meningitis outbreak in El Hierro
Health officials have confirmed three cases of viral meningitis linked to pupils at CEIP Tigaday in La Frontera, El Hierro. All of those affected are ...
Murder suspect arrested in Tenerife after 9 years thanks to DNA breakthrough
📅 22.10.2026 👁️ 3
Murder suspect arrested in Tenerife after 9 years thanks to DNA breakthrough
A man has been arrested and sent to prison pending proceedings over the sexual assault and murder of a woman in Tenerife nine years ago.The National P...
Mærður höfundur hankaður á gervigreind
📅 22.10.2026 👁️ 3
Mærður höfundur hankaður á gervigreind
Mærður höfundur hankaður á gervigreind Nýstirni í skáld­sagna­heim­inum hefur orðið fyrir aflýs­ingu eftir að gervi­greind greind­ist í margróm­uðu ve...
Ung­menni gripin við inn­brot - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ung­menni gripin við inn­brot - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar þar sem greint er frá því helsta sem kom upp frá klukkan 17:00 í gær til klukkan 05:00 í nótt. Þar er sagt að l...
Is the UK set to green-light the Rosebank oil field?
📅 22.10.2026 👁️ 3
Is the UK set to green-light the Rosebank oil field?
Scotland editor James Cook visits Rosebank - the UK's largest known untapped oilfield - in the North Atlantic.
THURSDAY WEATHER: Brighter skies in the eastern islands as showers continue further west
📅 22.10.2026 👁️ 3
THURSDAY WEATHER: Brighter skies in the eastern islands as showers continue further west
The Canary Islands will see contrasting weather today, Thursday 22nd October, with improving conditions in the east and a greater chance of rain acros...
Þorsteinn Pálsson skrifar: „Þetta lið“ og tilbeiðsluskattur þess
📅 22.10.2026 👁️ 3
Þorsteinn Pálsson skrifar: „Þetta lið“ og tilbeiðsluskattur þess
Mynd Á dögunum þegar rökleysan í efnahagsumræðunum gekk fram af
Fjögur ungmenni grunuð um innbrot
📅 22.10.2026 👁️ 3
Fjögur ungmenni grunuð um innbrot
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning í gær eða nótt um fjögur ungmenni sem voru að brjótast inn í húsnæði í umdæmi 1, sem er Austurbær, M...