Nemendum í 10. bekk grunnskóla verður gefin lokaeinkunn í tölustöfum í vor samkvæmt nýju einkunnakerfi, verði áætlanir menntamálaráðherra að veruleika. Það verður í fyrsta sinn í rúman áratug sem einkunnir í grunnskóla verða gefnar í tölustöfum, eða síðan bókstafseinkunnir voru teknar inn í aðalnámskrá 2011 og innleiddar að fullu 2015.
Þegar Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, kynnti áætlun um að hverfa aftur til tölustafseinkunna sagðist hún vera að bregðast við ákalli frá foreldrum og kennurum um skýrara og samræmdara námsmat. Áform ráðherra hafa verið harðlega gagnrýnd og eru síst sögð ná markmiði sínu um að gera einkunnagjöf skýrari, samræmdari og auðskiljanlegri.
„Það er ekki nóg að fullyrða að breytingar muni auka jafnræði og skýrleika. Það þarf að sýna fram á hvernig,“ segir til að mynda í umsögn aðstoðarskólastjóra um í samráðsgátt stjórnvalda.
Inga kynnti áform um að skipta aftur yfir í tölustafseinkunnir í vor. Strax næsta vor er stefnt á að gefa nemendum í 10. bekk lokaeinkunnir í tölustöfum. En það er ekki verið að snúa aftur til gamla tölustafseinkunnakerfisins sem var eins konar prósentukvarði. Tökum dæmi um hvernig einkunnir voru gefnar samkvæmt gamla tölustarfseinkunnakerfinu:
- Ef nemandi mætti 30% af þeim kröfum sem gerðar voru til hans fékk hann 3 í einkunn
- Ef nemandi mætti öllum þeim kröfum sem gerðar voru til hans fékk hann 10 í einkunn
Samhliða bókstafseinkunnakerfinu voru nefnilega innleidd svokölluð hæfniviðmið í aðalnámskrá í stað þess að miða einkunnir við prósentu. Í bókstafseinkunnakerfinu, sem nú á að leggja af, eru hæfniviðmiðin svona:
Nýja tölustafseinkunnakerfið nær, samkvæmt kynningarefni frá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS), frá 1 upp í 10. Einkunnir frá 1 til 3 verða hins vegar ekki notaðar og einkunnin 7 sýnir að hæfniviðmiðum sé náð. Einkunnirnar 8 til 10 sýna að hæfni sé umfram viðmið.
Nýtt einkunnakerfi hefur ekki verið tekið í notkun, en menntamálaráðherra hefur birt í samráðsgátt drög að bráðabirgðaákvæði. Þar eru skólar hvattir til að nota talnakvarðann 1 til 10 á skólaárinu, en kveðið á um að einkunnir við brautskráningu 10. bekkinga vorið 2027 verði gefnar í tölustöfum á bilinu 4 til 10:
Samkvæmt drögunum eiga grunnskólar eigi síðar en 10. janúar 2027 að birta endurskoðaða skólanámskrá þar sem gerð er grein fyrir nánari útfærslu á námsmati í 10. bekk fyrir skólaárið 2026-2027.
Frestur til umsagnar um bráðabirgðaákvæðið í samráðsgátt rennur út í dag. Tugir umsagna frá kennurum, skólastjórnendum og foreldrum hafa borist.
Fjölmargir umsagnaraðilar benda á að það sé óheppilegt að innleiða nýtt námsmat án þess að breyta aðalnámskrá. Þá segja þeir að frestur til innleiðingar sé allt of stuttur, sem auki álag á skólastjórnendur og kennara verulega og geri nemendur sem nú eru í 10. bekk að tilraunahópi.
Einkunnirnar 8 til 10 ekki skilgreindar nógu vel
Margir umsagnaraðilar gera athugasemd við að talnakvarðinn hafi tvöfalda merkingu eftir því hvort horft sé til einkunna fyrir einstök próf eða verkefni eða lokaeinkunn: þannig geti einkunnin 7 bæði táknað að nemandi hafi náð 70% árangri í verkefni eða prófi, eða að nemandi hafi náð hæfniviðmiði í lokamati.
Þá lýsa margir áhyggjum af því að mat á hæfni umfram hæfniviðmið, þ.e. fyrir lokaeinkunnir frá 8 til 10, sé ekki nógu vel skilgreint, sem auki hættu á að matið verði of huglægt og mismunandi milli kennara, skóla og jafnvel landsvæða. Þá setja margir spurningarmerki við það hvernig eigi að meta hæfni umfram það sem verið er að prófa fyrir:
Hvernig á að tryggja að nemendur hafi yfir höfuð alltaf tækifæri til að sýna meiri hæfni í þeim verkefnum og prófum sem eru lögð fyrir þá? Hvernig á svo að tryggja að allir kennarar meti þessa umfram hæfni á sama hátt? En fyrst og fremst, af hverju þarf að krefjast meira af nemendum? Af hverju mega þeir nemendur sem standa sig vel og uppfylla þá hæfni sem aðalnámskrá grunnskóla fer fram á, ekki bara fá hæstu mögulegu einkunn fyrir það?
Loks saka kennarar stjórnvöld um að velta ábyrgð yfir á skólastjórnendur og kennara.
„Þeir eiga að túlka kerfið, ákveða vægi, endurskrifa skólanámskrár, kennsluáætlanir, verkefni og matsramma og kynna breytingarnar fyrir nemendum og foreldrum – allt samhliða fullri kennslu og öðrum lögbundnum verkefnum. Þetta er ekki innleiðing. Þetta er að láta starfsfólk skólanna þróa kerfið eftir að stjórnvöld hafa ákveðið að taka það í notkun,“ skrifar deildarstjóri unglingastigs í sinni umsögn.
Núverandi 10. bekkingar eiga ekki að vera tilraunahópur og kennarar eiga ekki að vera ólaunað þróunarteymi stjórnvalda.