Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði karlmann í síðustu viku af ákæru um kynferðisbrot gegn 14 ára stúlku. Hann var ákærður fyrir að senda stúlkunni ítrekað kynferðisleg skilaboð og að hafa mælt sér mót við hana til að hafa við hana samræði eða önnur kynferðismök.
Maðurinn og stúlkan voru í samskiptum á Snapchat í fjóra mánuði 2023. Þá var stúlkan 14 ára og maðurinn á þrítugsaldri.
Samskipti þeirra komu til kasta lögreglu þegar stúlkan og móðir hennar mættu á lögreglustöð og tilkynntu áreiti af hendi fullorðins manns sem hefði beðið hana að senda sér myndir, þar á meðal nektarmyndir. Stúlkan sagðist hafa sagt manninum hversu gömul hún hefði verið.
Maðurinn sagðist ekki hafa vitað aldur stúlkunnar fyrr en samskipti þeirra höfðu staðið lengi. Hann hefði í fyrstu talið hana 18 eða 19 ára. Við þessa uppgötvun hefði hann blokkað stúlkuna og þætti þetta mjög miður. Hann sagði samskiptin hluta af því að halda uppi samskiptaflóði með því að senda skilaboð og oft myndir daglega.
Dómari sagði að ekki hefði verið sannað að maðurinn vissi hversu ung stúlkan væri.
„Heilt yfir bera samskiptin ekki með sér að hafa komist á það stig að ákærði og brotaþoli hafi kynnst að neinu marki og verða þau ekki skilin svo að ákærði hafi mælt sér mót við brotaþola, eins og í ákæru greinir, þó hann hafi gefið í skyn að þau kynnu að hittast og lýst kynferðislegum fantasíum í því samhengi.“
Maðurinn var því sýknaður af ákærunni. Bótakröfu stúlkunnar var vísað frá dómi.