Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið - Vísir

Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið - Vísir

Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið - Vísir

Púðlusafnið er nýtt íslenskt sviðsverk innblásið af bókinni Night Bitch eftir Rachel Yoder og óvenjulegum púðluarfinum. Styttusafnið hefur legið ósnert í kössum en verður nú tekið upp og fær nýjan tilgang í verki sem fléttar saman heimildaleikhúsi og fantasíuheimi næturtíkarinnar. 

Höfundar og flytjendur sýningarinnar eru systurnar Olga Sonja og Salóme Sól og leikstjórn sýningarinnar er í höndum Köru Hergils Valdimarsdóttur og Andreu Elínar Vilhjálmsdóttur. 

Púðlusafnið verður frumsýnt næstkomandi föstudag í Tjarnarbíói og ræddi blaðamaður við systurnar um þessa óvenjulegu sýningu, aðdragandann að henni og hvernig hugmyndin að henni kviknaði.

Ónærgætin spurning til ömmu

„Púðlusafnið er tenging mín við það þegar ég var barn og lék mér fyrir framan skápinn þar sem amma geymdi safnið. Ég bjó oft hjá ömmu og afa þannig að þau spiluðu stóran þátt í uppeldi mínu, voru smá eins og aukaforeldrar og amma svolítið eins og mamma númer tvö,“ segir Olga Sonja um safnið sem telur hátt í tvö hundruð púðluhunda.

Hugmyndin kviknaði fyrir nokkrum árum.Björgvin Sigurðsson

„Þegar ég var barn spurði ég ömmu hvort ég mætti eiga safnið þegar hún væri dáin. Þá áttaði ég mig ekki á því hversu ónærgætin spurningin væri og hvað hún í raun og veru þýddi. Ég mundi alltaf þetta samtal því mér fannst það svo beinskeytt og amma gerði það greinilega líka,“ bætir hún við.

Um svipað leyti og Olga Sonja eignaðist sitt fyrsta barn fyrir nokkrum árum og var að reyna að finna sig í móðurhlutverkinu þá féll amma þeirra systra frá. Olga erfði þá styttusafnið.

„Púðlusafnið hefur síðan legið í kössum inni í geymslu hjá mér í mörg ár og mér fannst það algjör synd. Þær eru stórkostlegar og ættu að vera sýnilegar,“ segir Olga Sonja.

Systurnar tækla móðurhlutverkið og samband sitt við ömmu sína.Björgvin Sigurðsson

Hvatti systurina til að hætta í jarðfræði

„Nokkrum mánuðum eftir að amma lést fékk ég símtal frá Olgu Sonju. Hún hafði erft púðlusafnið hennar ömmu en vissi ekkert hvar hún ætti að koma því fyrir heima hjá sér í Berlín. Þá spurði hún mig hvað mér fyndist um að gera sýningu um safnið og gefa því tilgang á ný,“ segir Salóme Sól um kveikjuna að sýningunni.

„Mér fannst þessi hugmynd brilljant og hvatti Olgu til að hætta í jarðfræði og sækja um listamannalaun. Síðan hófst samtal um hvaða heim við gætum skapað í kringum þetta safn. Við fórum að rifja upp samband okkar við Púðlusafnið frá því að við vorum krakkar og í leiðinni rifjuðust upp minningar af ömmu en líka spurningar sem við höfðum um hana,“ bætir hún við.

Salóme Sól er dansari og tónlistarkona.Björgvin Sigurðsson

„Um svipað leyti var ég að lesa bókina Nightbitch eftir Rachel Yoder, sem fjallar um listakonu sem verður heimavinnandi móðir. Hún er að glíma við erfiðleika sem fylgja þessu nýja hlutverki og byrjar að taka hamskiptum og breytast í tík á nóttunni. Eins og varúlfur nema hún breytist í hund,“ segir Olga Sonja.

„Þegar ég las bókina var ég nýlega orðin móðir sjálf, bjó erlendis og svo kom Covid og ég tengdi við svo margt sem móðirin upplifði, einangrun og einmanaleika. Þannig kviknaði eiginlega hugmyndin að því að gera sýningu. Einhvern veginn tengdist þetta allt, safnið sem samanstóð af hundruðum púðluhundastytta og næturtíkin,“ bætir hún við.

„Ég fer þá að reyna að spegla mig í ömmu og hugsa til þess hvernig hún gerði þetta allt saman. Hún eignaðist sitt fyrsta barn þegar hún var sautján ára og var orðin þriggja barna móðir 25 ára.“

Púðlusafnið er sýnt í Tjarnarbíói.Björgvin Sigurðsson

Blanda saman púðlusafninu við minningar og næturtíkina

„Við áttuðum okkur á því hvað þetta púðlusafn er sterk sameiginleg tenging okkar við ömmu og hennar heimili. Þessar púðlustyttur voru svo merkilegar fyrir okkur. Púðlusafnið var í raun upphafspunkturinn og það býður upp á endalausa fantasíu. Það er hægt að tengja svo margt við þessar púðlur og það einhvern veginn býður ímyndunaraflinu að leika lausum hala,“ segir Salóme Sól.

Nokkrar af styttunum úr púðlusafninu.

„Okkur fannst passa að gera verkið saman þar sem það er að hluta til um ömmu okkar og safnið hennar. Okkur fannst áhugavert að sjá hvort við minntumst ömmu á ólíkan hátt og ég held að sé líka áhugavert að fá sjónarhorn okkar beggja á móðurhlutverkið, ég verandi móðir en hún ekki,“ bætir Olga við.

Verkið er blanda af heimildaleikhúsi og fantasíuheimi. Hvernig lýsir það sér?

„Við erum við sjálfar á sviðinu og notum okkar persónulegu upplifanir og minningar en leyfum okkur að fara inn í fantasíuna líka. Blöndum saman minningum, myndefni og öðru um ömmu okkar við tilbúinn heim þar sem við leyfum okkur að taka hamskiptum,“ segir Olga Sonja en auk þeirra tveggja verða púðlustytturnar allar á sviðinu.

Púðlusysturnar skríða eftir gólfinu.Björgvin Sigurðsson

Verkið er unnið í samsköpunarferli níu kvenna sem telur systurnar, leikstjórana tvo og fleiri til. Leikritið hefur verið í vinnslu síðasta árið og fæðst í nokkrum lotum.

„Við erum að vinna verkið í nánu samstarfi við hópinn og hendum hugmyndum fram og til baka. Verkið hefur smám saman orðið til yfir síðasta árið og má segja að það sé ennþá að breytast, sem okkur finnst gott. Heldur þessu lifandi,“ segir Salóme Sól.

Þið hafið birt óvenjuleg myndbönd í aðdraganda sýningarinnar. Hverju eiga áhorfendur von á?

„Áhorfendur mega eiga von á einlægri sýningu, við erum að fjalla um persónulegar upplifanir af því að verða móðir og eins að vera systur og barnabörn ömmu okkar. En notumst líka við húmor og dans í verkinu,“ segir Salóme Sól.

Sýningin veltir því upp hvað konur erfa og hvað þær eiga að verða þegar þær verða mæður. Systurnar reyna að komast nær ömmu sinni og sjálfum sér í gegnum púðlusafnið og taka hægfara hamskiptum á sviðinu gegnum sýninguna þar sem þær breytast í púðlutíkur og verða smám saman hluti af safninu.

#barn #eignaðist #missti #sína #ömmu


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262948430d/eignadist-barn-missti-ommu-sina-og-erfdi-pudlusafnid

📰 Aðrar fréttir

Lýsir því yfir í viðtali að hann vilji sættir - Hvernig mun Vilhjálmur bregðast við ?
📅 21.10.2026 👁️ 0
Lýsir því yfir í viðtali að hann vilji sættir - Hvernig mun Vilhjálmur bregðast við ?
Vilhjálmur prins mun ekki hafa samband við Harry prins í bráð, þrátt fyrir að sá síðarnefndi hafi nýlega opinberlega óskað eftir sáttum.„Mun Vilhjálmu...
Romeo Beckham á hraðri leið fram úr Brooklyn - „Erfitt fyrir hann“
📅 21.10.2026 👁️ 1
Romeo Beckham á hraðri leið fram úr Brooklyn - „Erfitt fyrir hann“
Það gæti verið að Romeo Beckham verði farsælasti Beckham-bróðirinn, eldri bróður sínum til ama. The Sun greinir frá.Samkvæmt breska miðlinum er Romeo ...
Ragnhildur nýbúin að eiga afmæli og ætti að vera óhamingjusöm - En þetta er raunin
📅 21.10.2026 👁️ 0
Ragnhildur nýbúin að eiga afmæli og ætti að vera óhamingjusöm - En þetta er raunin
Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli, segir marga gera sömu mistök beint eftir æfingu, að borða ekki nóg kolvetni. Hún útskýrir málið ...
Íslensk kona í Malmö sendir Elliða tóninn – Varar við hættulegum afleiðingum
📅 21.10.2026 👁️ 0
Íslensk kona í Malmö sendir Elliða tóninn – Varar við hættulegum afleiðingum
Svala Magnea Ásdísardóttir, fjölmiðlafræðingur sem búsett er í sænsku borginni Malmö, gagnrýnir Elliða Vignisson, bæjarstjóra Ölfuss, harðlega vegna u...
Two arrested over €45,000 gaming-machine scam in Fuerteventura
📅 21.10.2026 👁️ 0
Two arrested over €45,000 gaming-machine scam in Fuerteventura
Two men have been arrested over an alleged €45,000 scam involving counterfeit gaming-machine prize tickets at an amusement arcade in Morro Jable, sout...
Gagnrýnir stjórnina fyrir verkleysi á Alþingi
📅 21.10.2026 👁️ 0
Gagnrýnir stjórnina fyrir verkleysi á Alþingi
Mjög lítið er að frétta af störfum Alþingis það sem af er þingvetri. Ríkisstjórnin hefur aðeins komið með rúmlega þrjátíu af þeim tæplega 160 málum í ...
Woman told Russell Brand he 'treated her like an animal', court hears
📅 21.10.2026 👁️ 0
Woman told Russell Brand he 'treated her like an animal', court hears
The comedian and actor is on trial for charges including rape and sexual assault, which he denies.
Birtingar­myndir kyn­ferðis­of­beldis gegn ungum konum að breytast - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Birtingar­myndir kyn­ferðis­of­beldis gegn ungum konum að breytast - Vísir
Í fréttatímanum er einnig greint frá því að hálka hafi verið á vegum á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og víða á Vesturlandi í morgun eftir kólnandi ve...
Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður - Vísir
Góðgerðartreyjan er afrakstur samstarfs á milli Víkings og 66°Norður sem hófst í byrjun árs og nær nú hápunkti þessa viku þegar treyjan, sem er framle...
Fimm ráðnir aftur eftir upp­sagnirnar - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Fimm ráðnir aftur eftir upp­sagnirnar - Vísir
„Það er bara eitthvað sem við þurfum alltaf að viðurkenna að þegar við fórum í stórar breytingar þá áttuðum við okkur á því að kannski gengum við aðei...
Sýknaður af ákæru um kynferðisbrot gegn 14 ára stúlku
📅 21.10.2026 👁️ 0
Sýknaður af ákæru um kynferðisbrot gegn 14 ára stúlku
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði karlmann í síðustu viku af ákæru um kynferðisbrot gegn 14 ára stúlku. Hann var ákærður fyrir að senda stúlkunni ítreka...
Hákarl varð konu að bana – Var í sjósundi með félögum sínum
📅 21.10.2026 👁️ 0
Hákarl varð konu að bana – Var í sjósundi með félögum sínum
Janine Lochrenberg, 65 ára, lést eftir hákarlaárás þegar hún var í sjósundi með félögum sínum við vinsæla baðströnd í gærmorgun. Sundfélagarnir komu h...
Sveitarstjórinn vann hjá Samherja á sínum tíma og sat í stjórn Fiskidagsins mikla
📅 21.10.2026 👁️ 0
Sveitarstjórinn vann hjá Samherja á sínum tíma og sat í stjórn Fiskidagsins mikla
Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri í Þingeyjarsveit, vann við skreiðarsölu frá Íslandi á árunum 1994 til 2018. Á þesssu tímabili starfaði hún meðal...
Vilja rann­saka vinnu­brögð sér­staks sak­sóknara - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Vilja rann­saka vinnu­brögð sér­staks sak­sóknara - Vísir
Þetta kemur fram í þingsályktunartillögu Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, og þrettán annarra þingmanna. Lagt er til að þriggja...
Hafi nauðgað með­vitundar­lausri sambýliskonunni - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
Hafi nauðgað með­vitundar­lausri sambýliskonunni - Vísir
Þetta segir í ákæru á hendur manninum, sem gefin var út í júlí. Fyrirtaka verður í máli Héraðssaksóknara á hendur honum fyrir Héraðsdómi Suðurlands á ...
Unnur Lilja lýsir skelfilegu atviki í útskriftarferð FG – „Maður hugsar alltaf - Þetta gerist ekki við mig“
📅 21.10.2026 👁️ 2
Unnur Lilja lýsir skelfilegu atviki í útskriftarferð FG – „Maður hugsar alltaf - Þetta gerist ekki við mig“
Unnur Lilja Andrésdóttir lýsir skelfilegri reynslu sem hún varð fyrir í útskriftarferð í Portúgal. Fimm menn króuðu hana af á skemmtistað.Unnur Lilja ...
Skattur á milljarðamæringa á kjörseðlinum
📅 21.10.2026 👁️ 1
Skattur á milljarðamæringa á kjörseðlinum
Skattur á milljarðamæringa á kjörseðlinum Kjós­endur í Kali­forníu greiða atkvæði um fimm pró­senta skatt á hreina eign um 200 millj­arða­mær­inga. Be...
Hackers steal children's data after company used 'Password1' for old account
📅 21.10.2026 👁️ 0
Hackers steal children's data after company used 'Password1' for old account
The data watchdog reprimanded Ogi Networks Limited and Data Cymru after the 2024 ransomware attack.
Smyrill í Norðurmýrinni
📅 21.10.2026 👁️ 1
Smyrill í Norðurmýrinni
Íbúar í Norðurmýri urðu varir við smyril í hverfinu í morgun. Ýr Jóhannsdóttir gekk fram á fuglinn á horni Gunnarsbrautar og Flókagötu á leið sinni ti...
At­vinnu­leysi dróst saman - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
At­vinnu­leysi dróst saman - Vísir
Þeim sem voru án atvinnu fækkaði milli mánaða en í ágúst mældist atvinnuleysi 6,8 prósent. Árstíðarleiðrétt atvinnuleysi dróst saman um 1,1 prósentust...
Masked boy guilty of trying to murder schoolgirl in Norfolk
📅 21.10.2026 👁️ 1
Masked boy guilty of trying to murder schoolgirl in Norfolk
The school went into lockdown and parents gathered at the gates as they waited for news about their children.
Töpuðu bar­daganum, lið­þjálfanum og prestinum - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
Töpuðu bar­daganum, lið­þjálfanum og prestinum - Vísir
Pistillinn birtist í Morgunblaðinu í dag undir fyrirsögninni „Opið bréf til óþekktra aðila“, tæpri viku eftir að Jón yfirgaf þingflokk Viðreisnar. Han...
Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það - Vísir
Garpur var skipað þeim hjónum Daða Frey og Árnýju Fjólu en í liði Þróttar mættu þau Hákon Jóhannesson og tónlistarkonan Bríet. Umræða skapaðist um íþr...
Hlaðvarpið True Crime Ísland eins árs – lögfræðingar segja frá íslenskum sakamálum
📅 21.10.2026 👁️ 1
Hlaðvarpið True Crime Ísland eins árs – lögfræðingar segja frá íslenskum sakamálum
Hlaðvarpið True Crime Ísland eins árs – lögfræðingar segja frá íslenskum sakamálum Fréttin21. október 2026Fréttatilkynning, InnlentLeave a Comment Ann...
Sænskur glæpa­foringi á­kærður fyrir þrjú morð - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
Sænskur glæpa­foringi á­kærður fyrir þrjú morð - Vísir
Ildar „Örvar“ (e. Scar) Galiyev er meðal annars sagður bera ábyrgð á sprengjutilræði í Uppsölum sem varð 24 ára gamalli konu að bana, morði á átján ár...
Vill losna við blaða­menn og fá sund­laug í staðinn - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
Vill losna við blaða­menn og fá sund­laug í staðinn - Vísir
Ekkert varð af því en samkvæmt heimildum blaðamanna New York Times hafði forsetinn lagt þetta nokkrum sinnum til á mánuðunum áður en hún lét af störfu...
Tíma­mót hjá Árna Má - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
Tíma­mót hjá Árna Má - Vísir
Árni rak lengi vel Gallery Port sem lokaði í vor eftir áratug í rekstri. Hann ætlar að fagna þessum nýja kafla með pomp og prakt en vinnustofan er í H...
Witkoff kominn til Rússlands með friðartillögur – Pútín tekur á móti erindreka Trumps
📅 21.10.2026 👁️ 2
Witkoff kominn til Rússlands með friðartillögur – Pútín tekur á móti erindreka Trumps
Witkoff kominn til Rússlands með friðartillögur – Pútín tekur á móti erindreka Trumps Fréttin21. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Comm...
Gagnrýnir frumraun Kylie Jenner hjá Victoria’s Secret og fyrirtækið harðlega: „Hún er ekki með líkama fyrirsætu“
📅 21.10.2026 👁️ 1
Gagnrýnir frumraun Kylie Jenner hjá Victoria’s Secret og fyrirtækið harðlega: „Hún er ekki með líkama fyrirsætu“
Adrianne Curry gagnrýndi Victoria’s Secret-tískusýninguna harðlega fyrir að fá Kylie Jenner til að koma fram á sýningunni á sunnudagskvöldið, og sagði...
Þórður Snær: stál, byrlun og leki
📅 21.10.2026 👁️ 2
Þórður Snær: stál, byrlun og leki
Þórður Snær: stál, byrlun og leki Fréttin21. október 2026Innlent, Páll Vilhjálmsson, StjórnmálLeave a Comment Þórður Snær Júlíusson. Páll Vilhjálmsson...
Mögnuð breyting á systrunum - Hafa misst samtals um 300 kíló
📅 21.10.2026 👁️ 1
Mögnuð breyting á systrunum - Hafa misst samtals um 300 kíló
Það er ótrúlegur munur á systrunum Amy og Tammy Slaton, en þeim hefur báðum tekist að léttast gífurlega og lifa heilsusamlegra lífi.Systurnar eru stjö...
Sí­fellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
Sí­fellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman - Vísir
Norðurhjálp hefur það sem af er þessu ári afhent einstaklingum og fjölskyldum í fjárhagsvanda bónuskort til matarinnkaupa að verðmæti yfir tuttugu mil...
Lexíur og leikhúsið
📅 21.10.2026 👁️ 2
Lexíur og leikhúsið
Lexíur og leikhúsið Sigríður Jóns­dóttir skrifar um Högg eftir James Graham, sem sýnt er í Þjóð­leik­hús­inu. Högg er enskt verð­launa­leik­rit eftir ...
Mokað allan liðlangan daginn
📅 21.10.2026 👁️ 1
Mokað allan liðlangan daginn
Framkvæmdir við dýpkun í Hafnarfjarðarhöfn hafa staðið yfir frá í fyrravetur. Næsta sumar mun ný smábátahöfn líta dagsins ljós og breytir ásýnd hafnar...
Íbúðareigendur í Gufunesi verulega ósáttir - Áttu ekki von á nýju húsi svo nálægt sínu
📅 21.10.2026 👁️ 2
Íbúðareigendur í Gufunesi verulega ósáttir - Áttu ekki von á nýju húsi svo nálægt sínu
Eigendur íbúða í fjölbýlishúsinu að Jöfursbási 5b, í Gufunesi í Reykjavík, eru verulega ósáttir við byggingu nýs fjölbýlishúss á næstu lóð við þeirra ...
Starfsfólk Orkunnar dælir eldsneyti til styrktar Bleiku slaufunni
📅 21.10.2026 👁️ 1
Starfsfólk Orkunnar dælir eldsneyti til styrktar Bleiku slaufunni
Starfsfólk Orkunnar tekur þátt í Bleika deginum í dag, miðvikudaginn 21. október, þegar þau taka yfir eldsneytisdælurnar á Orkustöðinni við Dalveg mil...
Elliði svarar Jasminu: „Ég veit ekki til þess að þú hafir valdið neinum skaða“
📅 21.10.2026 👁️ 2
Elliði svarar Jasminu: „Ég veit ekki til þess að þú hafir valdið neinum skaða“
Segja má að samfélagsmiðlar hafi logað eftir ummæli Elliða Vignissonar, bæjarstjóra Ölfuss, í garð múslima. Í gærkvöldi steig Jasmina Vajzovic, fyrrve...
Framlengja gæsluvarðhald yfir fjórum sakborningum í stórum fíkniefnamálum
📅 21.10.2026 👁️ 1
Framlengja gæsluvarðhald yfir fjórum sakborningum í stórum fíkniefnamálum
Landsréttur staðfesti á föstudag og mánudag þrjá úrskurði Héraðsdóms Reykjaness og einn úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um gæsluvarðhald yfir mönnum se...
Frakkar í vanda: Vextir hækka
📅 21.10.2026 👁️ 2
Frakkar í vanda: Vextir hækka
Frakkar í vanda: Vextir hækka Nið­ur­skurður í opin­berum útgjöldum er helsta kveikja mót­mæla Frakka, en ófriður eykur á vand­ann. Vaxta­á­lag á Frak...
Stephen Hubbard: Russia frees US citizen Stephen Hubbard, state media reports
📅 21.10.2026 👁️ 1
Stephen Hubbard: Russia frees US citizen Stephen Hubbard, state media reports
Stephen Hubbard has been taken to Pulkovo Airport, Putin said during talks with US envoy Steve Witkoff.
US citizen Stephen Hubbard freed by Russia and 'on his way home', Trumps says
📅 21.10.2026 👁️ 1
US citizen Stephen Hubbard freed by Russia and 'on his way home', Trumps says
The former teacher has been released without any "swap" required, according to the president.
US citizen Stephen Hubbard freed by Russia as Trump envoy meets Putin
📅 21.10.2026 👁️ 0
US citizen Stephen Hubbard freed by Russia as Trump envoy meets Putin
The 74-year-old former teacher has been released without any "swap" required, Trump says.
Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal - Vísir
Unnur Lilja var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni um þessa árás. Hún segir algengt að það komi upp einhver atvik í fjölmennum útskriftarferðum og að fó...
Skoða áætlunar­siglingar milli Skot­lands og Ís­lands - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Skoða áætlunar­siglingar milli Skot­lands og Ís­lands - Vísir
Skoskir fjölmiðlar greina frá þessu og segja viðræður vera hafnar milli Múlaþings og hafnaryfirvalda í Aberdeen. Þá sé ónefnt fyrirtæki búið að sýna s...
UK weather: Amber warning issued by Met Office ahead of Storm Austen
📅 21.10.2026 👁️ 1
UK weather: Amber warning issued by Met Office ahead of Storm Austen
The deep area of low pressure is expected to move close to the south of the UK early on Friday with south-west England set to bear the brunt.
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvað vill unga fólkið okkar verða?
📅 21.10.2026 👁️ 2
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvað vill unga fólkið okkar verða?
Það þarf heilt þorp til að ala upp barn. En hvaða fyrirmyndir býður þorpið upp á?Hverju myndi tíu ára barn svara ef við spyrðum það í dag: „Hvað langa...
Jón Gnarr lýsir töpuðum bardaga: „Það hefur því miður verið fátt um svör“
📅 21.10.2026 👁️ 1
Jón Gnarr lýsir töpuðum bardaga: „Það hefur því miður verið fátt um svör“
Jón Gnarr segir að sig hafi skort stuðning í pólitískri baráttu sinni og að hann hafi jafnvel farið að efast um hvort nokkur raunveruleg áætlun væri t...
Telur allt ógirt land tekið eignar­námi með dómi - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
Telur allt ógirt land tekið eignar­námi með dómi - Vísir
Landeigendurnir stefndu Fjarðabyggð og kröfðust þess að skaðabótaskylda sveitarfélagsins yrði viðurkennd. Töldu þeir að lög um afréttarmálefni og fjal...
Þingkonan missti báða fætur eftir á­rásina - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
Þingkonan missti báða fætur eftir á­rásina - Vísir
Toyota Land Cruiser-jeppa var ekið á Helen Haines, óháðan þingmann á ástralska þinginu, í heimabæ hennar Wangaratta á mánudag. Vitni sögðu að ökumaður...
Spá „hættulegri“ hlýnun um 2,8 gráður í heiminum
📅 21.10.2026 👁️ 1
Spá „hættulegri“ hlýnun um 2,8 gráður í heiminum
Spá „hættulegri“ hlýnun um 2,8 gráður í heiminum Vonin um að halda hlýnun undir 1,5 gráðum frá því fyrir iðn­bylt­ingu er „horfin“, segja Sam­ein­uðu ...